Stórbætt aðstaða í suðurbyggingu

Framkvæmdum við stækkun suðurbyggingar er lokið og hefur 1.900 fermetra stór viðbyggingin verið tekin í notkun. Stækkun Suðurbyggingar felur í sér betri aðstöðu fyrir farþega við brottfararhlið á báðum hæðum í austurenda Suðurbyggingar.

Framkvæmdir við stækkun Suðurbyggingar hófust í janúar 2024, en með henni hefur sætum í biðrými verið fjölgað verylega, ný brottfararhlið verið tekin í notkun, auk þess sem veitinga- og verslunarrými stækkar.

Um miðjan 10. áratuginn var afkastageta flugstöðvarinnar komin að þolmörkun og aukin þörf á stækkun var orðin ljós. Þessi aukna þörf fyrir stækkun lá að vissu leyti í fullri aðild Íslands að Schengen samstarfinu sem gerði kröfu um fullan aðskilnað farþega innan og utan svæðisins. Ný Suðurbygging, suður af gömlu flugstöðinni, sem í daglegu tali nefnist nú Norðurbygging, var því tekin í notkun árið 2001.

Rúmum áratug síðar var hins vegar orðið ljóst að þörf væri á að stækka Suðurbygginguna og hefur sú stækkun sýnt sig og sannað sem mikilvægur liður í uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli eftir mikla fjölgun farþega um völlinn frá árinu 2010, þá sérstaklega í flugi til og frá Norður-Ameríku og Bretlandseyjum.
Upplýsingar um verkefnið má finna hér.