KEF á HönnunarMars

Í ár tók Keflavíkurflugvöllur í fyrsta sinn þátt í HönnunarMars með sýningunni „Nýjar tengingar hasla sér völl“, þar sem kastljósinu var beint að mikilvægi nýsköpunar og samstarfs í þróun framtíðarlausna.
Jákvæð áhrif hönnunar
KEF hefur áður stutt við HönnunarMars, t.d. með því að hýsa sýningar á flugvellinum, en í ár var markmiðið að opna glugga inn í þá vinnu sem fram fer á flugvellinum og sýna hvernig hönnun getur haft jákvæð áhrif á upplifun farþega, starfsfólks og samstarfsaðila. Fyrir Keflavíkurflugvöll snýst þátttaka í HönnunarMars ekki aðeins um að kynna uppbyggingarverkefni, heldur einnig um að styrkja tengsl við samfélagið með samtali og skapa nýjar tengingar milli ólíkra greina.
Sýningin var opin dagana 7.–10. maí og mætti fjöldi gesta til að kynna sér verkefnin framundan, ræða hugmyndir og upplifa hvernig nýjar tengingar geta orðið drifkraftur jákvæðra breytinga.
Þá var einnig haldin fjölskyldusmiðjan „Draumaflugvöllur“ í samstarfi við Þykjó, þar sem börn og fullorðnir fengu að láta hugmyndaflugið ráða för og skapa umhverfi fyrir sinn eigin framtíðarflugvöll. Fjölskyldusmiðjan naut mikilla vinsælda og skapaði skemmtilega samveru.
Keflavíkurflugvöllur þakkar öllum sem heimsóttu sýninguna fyrir komuna, áhugann og góðar umræður.