ORAT prófun á hringtengingu við KEF

Á dögunum fór fram ORAT borðprófun á einum áfanga svokallaðrar hringtengingar fyrir framan flugstöðina.
ORAT (Operational Readiness, Activation & Transition) er alþjóðlega viðurkennd aðferðafræði sem miðar að því að tryggja að mannvirki, tæknikerfi, verkferlar og mannauður séu fullkomlega tilbúin þegar nýtt húsnæði eða ný starfsemi fer í notkun.
Með aðferðinni er áhersla lögð á heildstæða verkefnastjórnun, skýra ábyrgðarskiptingu og markvissa prófun á öllum lykilþáttum framkvæmdar áður en rekstur hefst.
Svokölluð borðprófun (e. desktop trial) fer þannig fram að fulltrúar helstu hagaðila og notenda sitja við stórt kort af framkvæmdinni og fara í gegnum ýmsar sviðsmyndir og hvernig brugðist yrði við ákveðnum aðstæðum. Með því móti fást mikilvægar upplýsingar um það hversu vel hönnunin mætir þörfum þessara aðila.
Nánar má lesa um hringtenginguna hér.