Verkefni í framkvæmd

Tollagangur endurbættur Tolla­gang­ur end­ur­bætt­ur

Gangurinn sem komufarþegar fara um á leið sinni úr töskusal, hefur verið stækkaður og endurbættur. Breytingarnar voru gerðar með upplifun farþega í huga en svara einnig þörfum vaxandi flugvallarstarfsemi.

Elsta óbreytta svæði flug­stöðv­ar­innar

Um er að ræða eitt elsta svæði flugvallarins sem hefur að mestu staðið óbreytt síðustu áratugi.

Framkvæmdum við þann hluta tollagangsins sem snýr að farþegum er lokið. Gangurinn var stækkaður og færður lítillega til. En einnig verða gerðar endurbætur á aðstöðunni baka til sem snýr að vinnuaðstöðu tollsins.

Nýr tollagangur

Betra komu­svæði og flæði

Samhliða framkvæmdum við tollganga var fordyri flugstöðvarinnar komumegin stækkað og aðstaða fyrir bílaleigur og rútufyrirtæki færð. Saman skapa þessar breytingar betra flæði og meira svæði fyrir komufarþega og aðra sem um svæðið fara.

Verklok voru haustið 2026.

Aukin þægindi í komusal