Nýjar gönguleiðir á aðkomusvæðiNýj­ar göngu­leið­ir á að­komu­svæði

Gönguleiðir liggja á aðkomusvæði flugvallarins, frá flugstöðvarbyggingunni og að ýmsum þjónustusvæðum; bílaleigusvæðum, bílastæðum og rútustæðum.

Þar sem allra veðra er von á landinu er áformað að yfirbyggja allar helstu leiðirnar og veita farþegum þannig skjól fyrir vatni og vindum.

Yfirbyggingu gönguleiða hefur verið skipt upp í tvo áfanga og er undirstöðuvinna hafin. Í þeim fyrri verður byggt yfir gönguleiðir að innri rútustæðum og bílastæðum sem staðsett eru við komusvæði, nánar tiltekið skammtímastæðum á P2. Í seinni áfanga framkvæmdanna verður byggt yfir gönguleiðir að langtímastæðum á P3 og ytri rútustæði.

  • Aukið öryggi
    Eykur öryggi gangandi vegfaranda á aðkomusvæðinu

  • Skjól
    Skjól frá vatni og vindum

  • Tveir áfangar
    Unnið í tveimur áföngum.

  • 550
    550 metrar af yfirbyggðum gönguleiðum