Ný tengibygging á milli Norðurbyggingar og Suðurbyggingartengi­bygg­ing á milli Norð­ur­bygg­ingar og Suð­ur­bygg­ingar

Byggingin verður hjarta Keflavíkurflugvallar. Þar fara allir farþegar í gegn á leið sinni áfram – á vit ævintýranna á Íslandi, út í hinn stóra heim með tengiflugi eða aftur heim.

Tengibyggingin er annar stóru áfanganna í uppbyggingu Keflavíkurflugvallar. Þessi nýja bygging mun, með Austurálmunni sem nú er í byggingu, stækkar flugstöðina um 70%. Ekki nóg með að tengibyggingin muni tengja saman upprunalegu flugstöðina og Suðurbyggingu, heldur mun hún einnig stórbæta þjónustu fyrir tengifarþega á Keflavíkurflugvelli.

Í hverju fel­ast breyt­ing­arnar?

  • Tenging milli ólíkra bygginga
    Nýja tengibyggingin er stundum kölluð hjarta Keflavíkurflugvallar þar sem hún tengir saman norður- og suðurhluta flugstöðvarinnar.

  • Kennir ýmissa grasa
    Hjarta flugvallarins mun hýsa nýtt veitingasvæði, komu-landamæri, þrjú biðsvæði og rútuhlið.

  • Forsenda stækkunar
    Nýja tengibyggingin er forsenda þess að hægt sé að stækka flugvöllinn til framtíðar.

  • Annar stóru áfangana
    Tengibyggingin er annar stóru áfangana í stækkun KEF.

Með nýju og björtu miðjurými skapast betri tenging milli álmna flugstöðvarinnar. Landgangurinn verður breikkaður, aðstaða komufarþega batnar með vegabréfaskoðun, nýrri fríhöfn og auknu þjónusturými. Einnig mun hlið við landgang verða uppfærð með stærra biðsvæði.

Vegna tilvonandi hlutverks tengibyggingarinnar á Keflavíkurflugvelli mun hún kallast Hjarta Keflavíkurflugvallar. Hönnunarvinna stendur yfir.

Tengi­bygg­ing­in í töl­um

  • Flatarmál 26.900 fermetrar
    Tengibyggingin verður tæpir 27 þúsund fermetrar sem er svipað og tónlistarhúsið Harpa við Reykjavíkurhöfn.

  • Grunnflötur 9.432 fermetrar
    Grunnflötur tengibyggingarinnar verður 9.432 fermetrar, sem er litlu minna en knattspyrnusalur Egilshallar.

  • Breidd 127 metrar
    Þar sem tengibygginginn er breiðust, er hún 127 metrar, sem er jafn mikið Harpa er horn í horn.

  • Lengd 134 metrar
    Tengibyggingin er 134 á lengd, sem er svipað langt og er frá flugstöð Keflavíkurflugvallar og út langtímabílastæðin.