Flugstöðin stækkar um 30%Flug­stöð­in stækk­ar um 30%

Ný austurálma hefur risið við Keflavíkurflugvöll sem stórbætir bæði aðkomu komufarþega og svæði fyrir brottfararfarþega með nýju biðsvæði og fleiri brottfararhliðum. Álman stækkar flugstöðina um 30% og hafa fyrsta og önnur hæð álmunnar opnað.

Framkvæmdir við austurálmu hófust í sumarbyrjun 2021 þegar fyrsta skóflustunga var tekin af þáverandi fjármálaráðherra. Jarðvinna gekk vel og var á stuttum tíma búið að grafa út fyrir 49.000 rúmmetra holu sem varð á endanum 55.000 rúmmetrar og 7,5 metrar að dýpt.

Nýr tösku­sal­ur og betri far­ang­urs­mót­taka

Álman er tekin í notkun í áföngum en fyrsti stóri áfanginn í augum farþega á Keflavíkurflugvelli var líklega um mitt ár 2023 þegar fyrsta hæð álmunnar opnaði. Fyrsta hæðin hýsir meðal annars nýjan og rúmbetri komusal með farangursmóttöku og nýtt farangursflokkunarkerfi í kjallara.

Í nýja töskusalnum eru þrjú stærri og breiðari farangursmóttökubönd, en gert er ráð fyrir að síðar geti tvö bönd bæst við.

Veit­inga­svæði og nýir land­gangar

Árið 2024 stækkaði komuverslun Fríhafnarinnar auk þess sem nýtt veitingasvæði opnaði á annarri hæð. Veitingasvæðið fékk nafnið Aðalstræti og var það hönnunarteymið HAF Studio sem hannaði svæðið. Áhersla var lögð á að skapa heildrænt rými sem minnir á útisvæði og stemningu miðborgar Reykjavíkur.

Á fyrstu mánuðum 2025 voru svo nýir landgangar og rútuhlið tekin í notkun auk þess sem nýtt biðsvæði opnaði á annarri hæð álmunnar.

Lyk­il­þátt­ur í fram­tíð KEF

Austurálman felur í sér nærri 30% stækkun flugstöðvarinnar og er lykilþáttur í framtíðarþróun flugvallarins. Nýir landgangar og rútuhlið bæta afgreiðslu flugvéla og upplifun farþega.

Á framkvæmdatíma munu 4-5 af núverandi landgöngum lokast. Fyrstu árin munu nýir landgangar og rútuhlið í austurálmu því gera mögulegt að halda uppi þjónustustigi á meðan framkvæmdir við tengibyggingu standa yfir. Næsti áfangi í þróun flugvallarins, bygging tengibyggingar, er þegar hafin.

Í hverju fel­ast breyt­ing­arnar?

  • Nýtt farangursflokkunarkerfi
    Nýtt farangursflokkunarkerfi eykur afköst og greiðir fyrir afhendingu farangurs til farþega.

  • Stærra og betra veitingasvæði
    Með rýmra og betra veitingasvæði ættu öll að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

  • Nýr komusalur og meira rými
    Rýmri og betri aðstaða fyrir farþega felur meðal annars í sér stærri komusal með færiböndum og rúmgott veitingasvæði.

  • Fjórir nýir landgangar
    Fjórir nýir landgangar þar sem farþegar geta gengið beint út í flugvél og tvö ný rútustæði sem flytja farþega að yfirbyggðum fjarstæðum.

Mynd­ir

Myndir frá Austurálmu

Aust­ur­álm­an í töl­um

  • Flatarmál 25.000 m2
    Austurálma verður um 25 þúsund fermetrar en til samanburðar er Laugardalshöll 17 þúsund fermetrar.

  • Lengd 124,5 m
    Lengd Austurálmu verður 124,5 og verður hún því álíka löng og Bankastræti í Reykjavík.

  • Breidd 66 m
    Austurálma verður 66 m á breidd sem svipað og dæmigerður knattspurnuvöllur.

  • Hæð 31 m
    Austurálma verður 31 m á hæð en til samanburðar eru turnar Akureyrarkirkju 26 m.