
Bætt aðstaða og aðgengiBætt aðstaða og aðgengi
Framkvæmdum í komusal flugvallarins í vegna aðstöðu fyrir bílaleigur í KEF er nú lokið.
Framkvæmdirnar hófust fyrr á árinu og þeim lauk á áætluðum tíma. Breytingarnar sneru að aðstöðu fyrir bílaleigur sem staðsett er í norðausturhorni komusalsins, en tímabundna aðstaða fyrir afgreiðslu bílaleiga hefur nú verið tekin niður og nýja svæðið í fullri notkun.
Í kjölfar útboðs sem lauk í desember 2025 var gerð veruleg breyting á aðstöðu fyrir bílaleigur á KEF. Fjöldi rekstraraðila jókst úr þremur í fjóra, eftir að þrír rekstraraðilar höfðu haft aðstöðu í flugstöðinni síðustu tuttugu ár.

Hönnun á svæðinu fylgdi stefnu nýrra úrbóta á svokölluðum tollagangi, með það að markmiði að bæta þjónustu og upplifun fyrir bæði gesti og starfsfólk. Framkvæmdir gengu vel, en um er að ræða svæði flugvallarins sem hefur að mestu staðið óbreytt síðustu áratugi og því tímabær uppfærsla á innviðum vallarins.
Hægt er að lesa meira um breytingar á tollagangi hér.