
Tímabundinn tengigangur Tímabundinn tengigangur
Tímabundinn tengigangur verður settur upp á Keflavíkurflugvelli vegna viðamikilla framkvæmda sem framundan eru.
Ný tengibygging mun rísa og samhliða því verða einnig framkvæmdir við nærliggjandi flughlöð. Þetta mun hafa áhrif á núverandi tengingu milli norður- og suðurbyggingar. Á meðan verður því settur upp tímabundinn tengigangur til að tengja saman byggingarnar og lágmarka þannig áhrif á farþegaupplifun og almenna flugvallarstarfsemi.
Stækkun KEF
Ný tengibygging er stór og umfangsmikil framkvæmd. Hún er önnur af tveimur stærstu stækkunum á flugstöðinni en hin stóra stækkunin var ný austurálma sem var formlega opnuð 21. mars 2025. Nýja tengibyggingin verður fullkláruð um 30 þúsund fermetrar, og má segja að hún verði nokkurs konar hjarta flugvallarins. Hún mun tengja saman flesta anga flugstöðvarinnar, þ.m.t. norður- og suðurbyggingar og hún verður forsenda frekari stækkana flugstöðvarinnar. Hún verður þó reist í nokkrum áföngum en strax með fyrsta fasa hennar munu aðstaða og þjónusta fyrir farþega stórbatna, ekki síst tengifarþega. Nánar má lesa um tengibygginguna hér.

Framkvæmdir á flugvelli í fullum afköstum
Áskoranir fylgja því að standa í framkvæmdum á flugvelli sem er í fullum rekstri. Þær kalla á mikið skipulag þar sem samræma þarf bæði daglega flugvallarstarfsemi og framkvæmdirnar. Tengigangurinn er hluti af þessari samræmingu og gerir farþegum kleift að fara á milli byggingarhluta þrátt fyrir umfangsmiklar framkvæmdir.
Á framkvæmdatíma verður tengigangurinn eina samfellda farþegaleiðin á milli norður- og suðurbyggingar flugstöðvarinnar. Gangurinn mun styðja við svokallað tvíátta (e. two-way) farþegaflæði, mikla umferð á álagstímum og áframhaldandi aðgengi að hliðum. Þannig getur rekstur flugvallarins haldið áfram án truflana.
Vegna framkvæmdanna hefur flugvélastæðum 1, 3 og 5 verið lokað en stæði 5 verður aðeins lokað tímabundið. Það er stæðið sem þjónar hliðum A15 og D15.
Fróðleiksmolar um tengiganginn
Heildarlengd tengigangsins er áætluð um það bil 150 metrar, sem gerir hann að einu stærsta tímabundna farþegamannvirki sem reist hefur verið á Keflavíkurflugvelli.
Tengigangurinn verður eina farþegaleiðin sem tengir norður- og suðurbyggingu flugstöðvarinnar á meðan framkvæmdir standa yfir.
Hluti tengigangsins tryggir áframhaldandi notkun flugvélastæðis númer 5 á framkvæmdatímanum, en það er stæðið sem þjónar hliðum A15 og D15.
Gangurinn er byggður úr forsmíðuðum einingum sem settar eru saman á staðnum.
Mannvirkið er reist í tveimur áföngum svo notkun geti hafist eins snemma og mögulegt er.
Að notkun lokinni verða einingarnar endurnýttar í öðrum verkefnum á flugvellinum.
Nánar um mannvirkið
Tengigangurinn er að mestum hluta framleiddur utan byggingarsvæðis og síðan fluttur á flugvöllinn til uppsetningar. Forsmíðuðu einingarnar verða settar saman á svæðinu og mynda þar lokaðan farþegagang. Með sameinuðum einingum verður til samfelld, lokuð, örugg og veðurvarin tenging fyrir farþega milli bygginganna. Þrátt fyrir að mannvirkið sé tímabundið er það hannað fyrir almenna notkun og uppfyllir allar helstu kröfur um öryggi, aðgengi, brunavarnir, lýsingu og þægindi farþega.
Með því að framleiða meginhlutann utan vallar og setja saman á staðnum er framkvæmdatími á staðnum lágmarkaður sem og rask fyrir farþega, starfsfólk og flugvallarrekstur. Framkvæmdirnar eru jafnframt unnar í nánu samráði við starfandi sérfræðinga í flugvallarrekstri til að tryggja öryggi, verndarsvæði og órofna farþegaleið á meðan á byggingu stendur.
Tengigangurinn er frá upphafi hannaður sem tímabundið mannvirki. Þegar hans er ekki lengur þörf sem farþegatenging verða einingarnar teknar niður og þær endurnýttar í síðari
framkvæmdum á flugvellinum. Með þessari nálgun er dregið úr úrgangi og stuðlað að skilvirkari og sjálfbærari uppbyggingu til framtíðar.
Tímarammi
Uppbygging tengigangsins fer fram í tveimur áföngum. Í þeim fyrri er hluti tengigangsins reistur og tengdur við flugvélastæði 5 sem tryggir að flugvélastæðið haldist í virkri notkun en í seinni áfanga er tengigangurinn fullkláraður.
Áætlað er að framkvæmdir við að reisa tímabundna tengiganginn hefjist haustið 2026. Hluti hans verður tekinn í notkun sumarið á eftir en áætað er að gangurinn verði tilbúin nog kominn í fulla notkun í árslok 2027.
Nánar má lesa um nýja tengibyggingu hér.