Framkvæmdir á Reykjanesbraut laugardaginn 11. október
Farþegar hvattir til að leggja tímanlega af stað á Keflavíkurflugvöll.

Vegna fyrirhugaðra viðhaldsframkvæmda á Reykjanesbraut á morgun, laugardaginn 11. október, verður umferð að Keflavíkurflugvelli beint um hjáleið í gegnum Reykjanesbæ. Leiðirnar verða merktar á staðnum.
Framkvæmdirnar fara fram milli kl. 9:00 og 17:00 á milli hringtorgs við Fitjar og að Rósaselstorgi við Garðsskagaveg (sjá á Google maps).
Farþegum, sem eiga leið til og frá Keflavíkurflugvelli á þessum tíma, eru hvattir til að leggja tímanlega af stað, kynna sér fyrir fram breytingar á umferð og gera viðeigandi ráðstafanir í ferðaáætlunum sínum.
Isavia, Vegagerðin og Malbikunarstöðin Höfði biðja vegfarendur um að sýna tillitssemi og aka varlega við framkvæmdasvæðið.
Farþegum er bent á að fylgjast með framkvæmdum á Umferdin.is