Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Gjaldeyrir og endurgreiðsla virðisauka

Hagstætt gengi

0% þóknun á netinu

Pantaðu gjaldeyri hjá Prosegur Change á netinu með 0% þóknun og fáðu afhent á flugvellinum fyrir brottför – endurkaupstrygging í boði.

Opn­un­ar­tím­ar

Gjaldeyrir

  • Vetur (1. október – 30. apríl): 05:00 – 22:00
  • Sumar (1. maí – 30. september): 05:00 – 01:00

Endurgreiðsla virðisaukaskatts

  • Vetur (1. október – 30. apríl) 04:30 – 20:00
  • Sumar (1. maí – 30. september): 04:30 – 22:00

ATM

  • Opnir allan sólarhringinn alla daga ársins

Pros­eg­ur Change

Gjaldeyrisskipti

Þú getur pantað gjaldeyri á netinu áður en þú kemur á flugvöllinn og sótt pöntunina á þægilegan hátt í útibúi Prosegur Change, í komusal (fyrir öryggisleit). Þannig færðu 0% þóknun og besta mögulega gengið.

Pantaðu gjaldeyrinn hér.

Á vefsíðu Prosegur Change má finna frekari upplýsingar um þjónustuna.

Endurgreiðsla virðisaukaskatts

Þarftu að sækja um endurgreiðslu virðisaukaskatts? Hægt er að sækja um endurgreiðslu hjá Prosegur Change sem er staðsett í komusal. Við bendum á að farþegar verða að endurheimta virðisaukaskatt áður en farangur er innritaður.

Hraðbankar

Hraðbankar eru staðsettir víða um flugstöðina og veita skjótan og öruggan aðgang að gjaldeyri. Hraðbankarnir eru opnir allan sólarhringinn, sem gerir þér kleift að taka út peninga þegar þörf krefur, óháð því hvort þjónustuborðið er opið. Staðsetningar hraðbanka finnur þú hér.

Pantaðu gjaldeyrinn á netinu áður en þú flýgur!Pant­aðu gjald­eyr­inn á net­inu áður en þú flýg­ur!

Reglur um end­ur­greiðslu á virð­is­auka

Heimilt er að endurgreiða virðisaukaskatt til (aðila búsettra erlendis) af varningi sem þeir hafa fest kaup á hér á landi að uppfylltum skilyrðum reglugerðar.

Skilyrði endurgreiðslu er að kaupandi vörunnar sé með fasta búsetu í öðru landi en á Íslandi. Til sönnunar á fastri búsetu erlendis skal leggja fram vegabréf eða önnur skilríki sem ótvírætt sanna fasta búsetu í öðru landi. Útlendingar með fasta búsetu hér á landi eiga ekki rétt á endurgreiðslu.

Til að endurgreiðsla fáist verður að uppfylla öll eftirtalinna skilyrða:

  1. Kaupandi hafi vöruna á brott með sér úr landi innan þriggja mánaða frá því að kaupin voru gerð.
  2. Kaupverð vörunnar með virðisaukaskatti nemi minnst 12.000 kr.
  3. Vörunni sé framvísað ásamt tilskildum gögnum við brottför.

Farþegar þurfa að óska eftir endurgreiðslu virðisaukaskatts áður en þeir innrita farangur sinn.

Heimilt er að endurgreiða virðisaukaskatt af vörum á einum og sama vörureikningi sé kaupverð þeirra samtals 12.000 kr. eða meira ásamt virðisaukaskatti, þó einn eða fleiri munir nái ekki tilskilinni lágmarksfjárhæð.

Við brottför úr landi frá Keflavíkurflugvelli skal kaupandi framvísa varningi ásamt endurgreiðsluávísun og greiðslukvittun til endurgreiðsluaðila, er leysir hana til sín, enda séu skilyrði reglugerðar þessarar að öðru leyti uppfyllt.

Reglugerð um endurgreiðslu á virðisaukaskatti til aðila búsettra erlendis.