Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Flugvallarsamfélagið

Hér má nálgast ýmsar reglur, aðgerðir og þjálfun tengt öryggismálum á Keflavíkurflugvelli.

Ör­yggi og reglur

Öryggisreglur fyrir Keflavíkurflugvöll eru sniðnar eftir gildandi lögum og reglugerðum um öryggi og hollustuhætti á vinnustöðum. Þær miðast við þá starfsemi sem fram fer á flugvellinum og er ætlað að draga úr áhættu og auka öryggi starfsfólks og farþega sem fara um Keflavíkurflugvöll. Reglurnar gilda fyrir alla starfsmenn sem starfa á Keflavíkurflugvelli. Smelltu hér til þess að skoða öryggisreglurnar.

Við­bún­að­ur vegna vetr­ar­veðr­áttu og óveð­urs

Í gildi eru reglur sem skilgreina með hvaða hætti brugðist er við slæmum veðurskilyrðum til þess að tryggja öryggi farþega, starfsfólks og tækja. Vetrarþjónustu á flughlaði er einnig lýst, en markmið þjónustunnar er að tryggja öryggi og lágmarka tafir vegna vetraraðstæðna á flughlaði.

Brot á flug­verndar- eða ör­yggi­regl­um

Brot á flugverndar- eða öryggisreglum eru skráð og viðurlögum beitt þegar það á við. Markmiðið er fyrst og fremst að auka öryggisvitund allra starfsmanna og skilning á þeim reglum sem gilda.