Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Sérfræðingur í byggingarupplýsingalíkönum (BIM)

Sem BIM sérfræðingur verður þú lykilhluti af teymi sem heldur utan um stafræna líkanagerð mannvirkja við Keflavíkurflugvöll, allt frá hönnunarstigi til framkvæmda og áfram inn í rekstur. Unnið er þvert á teymi arkitekta, verkfræðinga og annarra fagaðila til að tryggja samræmda og skilvirka vinnu með stafræn byggingarlíkön.

Takast þarf á við spennandi verkefni í lifandi umhverfi, með fjölbreyttum kröfum og möguleikum. Lykillinn að þeim árangri sem náðst hefur í þeirri gríðarlegu uppbyggingu sem hefur átt sér stað á Keflavíkurflugvelli undanfarin ár eru fagleg vinnubrögð, teymishugsun og frumkvæði.

Hlutverk og ábyrgð

• Umsjón og þróun með BIM vinnuferla í verkefnum

• Uppsetning og viðhald stafrænna líkans bygginga og byggingahluta

• Samvinna við hönnuði og aðra fagaðila um samræmingu líkanagagna

• Þróun og viðhald verklags og gæðastaðla í BIM

• Þáttaka í stefnumótun stafrænnar þróunar innan einingarinnar

• Umsjón með CAD-grunnum og BIM líkönum

Hæfni og menntunarkröfur

• Menntun á sviði byggingartækni, verkfræði, arkitektúrs eða tengdra greina

• Reynsla af vinnu með BIM hugbúnaði, t.d. Revit, Navisworks, Solibri o.fl.

• Þekking á BIM stöðlum og verkferlum (t.d. ISO 19650, IFC, o.fl.)

• Hæfni í teymisvinnu og lausnamiðuð hugsun

• Skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð

Við bjóðum

• Tækifæri til að vinna hjá fyrirtæki sem hefur markvisst markmið um að vera leiðandi í notkun og þróun BIM og stafrænna lausna í mannvirkjaverð

• Krefjandi og fjölbreytt verkefni á alþjóðlegum flugvelli í stöðugri þróun

• Tækifæri til að móta og þróa BIM stefnu Isavia í framkvæmdaverkefnum

• Heilsusamlegt fæði í mötuneyti

• Aðgang að heilsu- og líkamsræktarstöðvum án kostnaðar

• Starf í framsæknu og metnaðarfullu starfsumhverfi

Frekari upplýsingar um starfið veitir Ingimundur Jónsson deildarstjóri, í netfangið [email protected]

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi fyrir hæfni í starfið. Við hvetjum öll áhugasöm, óháð kyni eða uppruna, til að sækja um

Sækja um