Tímabundin breyting á aðgengi að 4. hæð
Brúin yfir á 4. hæð verður lokuð frá og með 2. nóvember vegna framkvæmda
Um lokunina
Áætlað er að framkvæmdirnar taki um sex vikur.Á meðan á framkvæmdum stendur verður starfsfólki beint um tímabundinn inngang við komusal, eins og sýnt er á meðfylgjandi myndum.
Mikilvægt – Önnur leið milli kl. 11:00 og 14:00
Vegna kranahífinga þarf að nota aðra leið til og frá skrifstofum á hverjum degi milli kl. 11:00 og 14:00.
Á þessum tíma er starfsfólki heimilt að ganga inn um tollainnganginn úr komusal til að komast til og frá skrifstofunum.
Neðri skýringarmyndin hér fyrir neðan sýnir leiðina sem nota skal á þessum tíma.
Við biðjum allt starfsfólk að kynna sér aðkomuleiðirnar vel og fylgja merkingum á svæðinu meðan á framkvæmdum stendur.

