Gerðu ferðalagið þægilegra
Með rafrænu BAGTAG merki geta farþegar innritað sig og uppfært upplýsingarnar á töskunni sinni áður en haldið er á flugvöllinn. Í stað þess að bíða í röð eftir að prenta út pappírsmiða, er taskan þín einfaldlega tilbúin þegar þú mætir. Fyrir farþega sem fljúga með Icelandair er þetta ferli þegar aðgengilegt í gegnum BAGTAG-appið.
Hvernir virkar BAGTAG?
- Þú kaupir BAGTAG rafrænt farangursmerki
- Innritar þig í flugið eins og venjulega
- Uppfærir farangursmerkið í BAGTAG appinu
- Ferð með töskuna beint í sjálfsafgreiðslu í töskuafhendingu
Af hverju ættir þú að velja BAGTAG
Með því að mæta með merkta tösku kemst þú hraðar í gegnum flugstöðina. Þannig styttir þú tímann á innritunarsvæðinu, kemst hraðar í gegn og getur notið alls þess sem KEF hefur upp á að bjóða áður en þú ferð í loftið.
BAGTAG er í notkun hjá yfir 20 flugfélögum um allan heim. Merkið er hannað til að nýtast aftur og aftur, sem þýðir að eitt rafrænt merki getur komið í stað hundruða töskumiða á pappír.
Tilboð fyrir farþega KEF
Farþegar sem fara um Keflavíkurflugvöll fá 15% afslátt af BAGTAG farangursmerki með afsláttarkóðanum KEF15.
