Febrúar á KEF: 478 þúsund farþegar á ferð

Farþegafjöldi í febrúar var 477.833, sem er 2,8% fækkun frá febrúar í fyrra en í takt við farþegaspá fyrir árið.
Alls hafa 946.892 gestir farið um Keflavíkurflugvöll fyrstu tvo mánuði ársins.
Í febrúar flugu 20 flugfélög til 65 áfangastaða. Vinsælustu áfangastaðirnir voru London, Kaupmannahöfn, Manchester, París og Amsterdam.
Mest var að gera á flugvellinum 23. febrúar, þegar 22.395 farþegar lögðu leið sína um KEF.

Samkvæmt mælingum Ferðamálastofu voru brottfarir Íslendinga í febrúar 42.091. Það gerir 12% fjölgun frá febrúar á síðasta ári.
Brottfarir erlendra gesta frá landinu um KEF voru 146.936, sem gerir 5,6% fækkun frá febrúar í fyrra.
Flestar brottfarir erlendra gesta voru tilkomnar vegna Breta (28% af heild), þar á eftir komu Bandaríkjamenn (19%), síðan Kínverjar (5%), Hollendingar (4%) og Frakkar (4%).