Um 530 þúsund gestir í nóvember

Næstsíðasti mánuður ársins var annasamur og skemmtilegur. Alls lögðu 529.411 gestir um flugvöllinn, sem er 1,4% meira en í nóvember á síðasta ári.
16 flugfélög flugu til 63 áfangastaða þar sem vinsælustu áfangastaðirnir voru London, Kaupmannahöfn, Manchester, New York og Amsterdam.
Mest var að gera í nóvembermánuði sunnudaginn 3. nóvember þegar 21.754 gestir fóru um flugvöllinn.

Samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu voru brottfarir Íslendinga 35 þúsund í nóvember.
Brottfarir erlendra gesta frá landinu um flugvöllinn voru 162 þúsund. Um er að ræða tæplega 14 þúsund fleiri brottfarir en í nóvember í fyrra.
Flestar brottfarir erlendra gesta voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna (23% af heild), svo Breta (21%), Ítala (5%), Þjóðverja (5%) og loks Frakka (4%).