Inngöngufatnaður Vetrarólympíuleikanna frá 66°Norður til sýnis

Ólympíuhópurinn mun klæðast hágæða íslenskri hönnun frá 66°Norður og ganga inn í sérhönnuðum Hornstrandir jakka og buxum á setningarathöfn Ólympíuleikanna.
Í ljósi þess að 66°Norður fagnar 100 ára afmæli á árinu þótti skemmtilegt að stilla inngöngufatnaði Ólympíuhópa liðinna ára upp á Keflavíkurflugvelli. Þar má nú sjá inngöngufatnaðinn frá Lillehammer 1994, Nagano í Japan 1998, Vancouver í Kanada 2010 og sérstaka útgáfu af Hornstrandir settinu sem verður inngöngufatnaður landsliðsins í Cortina á Ítalíu 6. febrúar 2026.
„Samstarf okkar á sér langa sögu og við hlökkum til að fylgja okkar íþróttamönnum í gegnum leikana í hágæða íslenskri hönnun. Við teljum þetta sérstaklega skemmtilegan tímapunkt í ljósi þess að 66°Norður fagnar 100 ára afmæli á árinu.“
Jafnframt mun 66°Norður sjá um annan fatnað liðsins til æfinga og á milli keppnisdaga á leikunum.
Þú finnur vörur innblásnar af samstarfi 66°Norður og Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands - ÍSÍ í tilefni Vetrarólympíuleikanna meðal annars í verslun 66°Norður á Keflavíkurflugvelli.
Við óskum íslensku keppendunum góðs gengis og hlökkum til að fylgjast með þeim!
Inngöngufatnaðurinn sem er til sýnis er frá eftirfarandi Vetrarólympíuleikum:
- 1994 Lillehammer, Noregi
- 1998 Nagano, Japan
- 2010 Vancouver, Canada
- 2026 Cortina, Ítalía

