715 þúsund gestir í október

Margt var um manninn á Keflavíkurflugvelli (KEF) í októbermánuði. Alls lögðu 714.994 gestir leið sína um flugvöllinn sem er +3,3% fjölgun frá október í fyrra.
Alls flugu 24 flugfélög til 82 áfangastaða. Vinsælustu áfangastaðirnir voru London, New York, Kaupmannahöfn, París og Amsterdam.
Mest var að gera laugardaginn 5. október þegar 26.409 gestir fóru um flugvöllinn þann daginn.

Samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu Íslands voru brottfarir Íslendinga voru 55 þúsund í október. Frá áramótum (janúar-október) hafa Íslendingar farið erlendis 519 þúsund sinnum, sem er +0,3% aukning frá sama tíma í fyrra.
Brottfarir erlenda gesta frá landinu voru 213 þúsund. Um er að ræða tæplega 10 þúsund fleiri brottfarir en í október á síðasta ári. Frá áramótum hafa tæplega tvær milljónir erlendra farþega farið frá Íslandi. Um er að ræða 4,9% fjölgun frá því á sama tíma í fyrra.
Flestar brottfarir má rekja til Bandaríkjamanna eða um 20%, Bretar voru 11% heildarbrottfara, Þjóðverjar voru 8%, Kínverjar voru 5% og Frakkar voru 4% af heild.