Um 800 þúsund gestir í september

Haustið er lent og september mánuður var skemmtilegur og viðburðarríkur á Keflavíkurflugvelli (KEF). Fjöldi gesta voru 790.809 sem er 5,6% fleiri en í sama mánuði árið á undan.
Alls flugu 25 flugfélög til 80 áfangastaða. Vinsælustu áfangastaðirnir voru New York, London, Kaupmannahöfn, París og Amsterdam.
Mest var að gera í september mánuði þann 1. september, þegar 33.320 gestir fóru um völlinn.

Samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu voru brottfarir Íslendinga 52 þúsund í september. Það eru um 1.700 fleiri en í september 2023.
Brottfarir erlendra gesta frá landinu voru um 223 þúsund í september. Um er að ræða tæplega 5 þúsund fleiri brottfarir en í sama mánuði í fyrra.
Flestar brottfarir voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna (70 þúsund), þar á eftir komu Þjóðverjar (15 þúsund), Pólverjar (12 þúsund), Kanadamenn (11 þúsund) og Bretar (10 þúsund).