Austurálma mun taka vel á móti farþegum í lok 2023

Austurálman mun opna í áföngum, fyrst með nýrri töskumóttöku á næsta ári og svo í skrefum fram að lokum 2024. „Töskumóttökusalurinn mun taka vel á móti farþegum þegar þeir koma til landsins, hvort sem það séu íbúar að snúa heim eða ferðamenn að koma til landsins,“ segir Guðmundur Daði.
Í síðari áföngum mun koma nýtt veitinga- og biðsvæði, sex ný hlið fyrir farþega sem og komuverslun fríhafnarinnar verður stækkuð. „Austurálman og sú bætta aðstaða sem henni fylgir mun gjörbreyta þjónustuupplifun á flugvellinum,“ segir hann og bætir við að stærðin er 90% af Hörpu og kjallari hússins er á stærð við löglegan fótboltavöll.
Guðmundur Daði fjallaði um ábyrga uppbyggingu Keflavíkurflugvallar nýja Austurálmu á morgunverðarfundi Isavia í Hörpu. „Austurálma er stærsta einstaka framkvæmdin sem er í gangi. Þetta er umfangsmikil framkvæmd sem nú þegar setur sterkan svip á umhverfi flugvallarins á byggingartíma. Mikið er lagt upp úr því að taka á móti farþegum með hlýleika og skýra skírskotun til Íslands enda fyrsti viðkomustaður ferðamanna til Íslands og upphafið að nýrri nálgun okkar í hönnun bygginga og umhverfis Keflavíkurflugvallar“.