Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Ábyrgð í verki

Heimsókn forstjóra UN Global Compact og tíu ára vegferð Isavia.

Isavia og Keflavíkurflugvöllur fagna nú tíu ára þátttöku í UN Global Compact, stærsta sjálfbærniverkefni heims á vegum Sameinuðu þjóðanna. Þátttakan hefur frá upphafi verið mikilvægur hluti af því að móta ábyrga starfsemi félagsins og tengja hana við alþjóðlega umgjörð sjálfbærni. Þessa dagana erum við sérstaklega minnt á mikilvægi þessarar vegferðar þar sem Sanda Ojiambo, aðstoðaraðalritari Sameinuðu þjóðanna og forstjóri UN Global Compact, heimsótti Ísland nýverið.

UN Glo­bal Com­pact

Alþjóðlegur rammi um ábyrg viðskiptalíf

UN Global Compact sameinar yfir 25.000 fyrirtæki í 167 löndum í sameiginlegri vegferð að ábyrgari og sjálfbærari viðskiptaháttum. Framtakið byggir á tíu meginreglum sem snúa að:

  • Mannréttindum
  • Vinnumálum
  • Umhverfisvernd
  • Aðgerðum gegn spillingu

Fyrirtæki sem taka þátt skuldbinda sig til að flétta þessar meginreglur inn í stefnu, daglegan rekstur og samskipti við hagaðila. Það gera þau ekki aðeins á pappír heldur í raunverulegum aðgerðum.

Tíu ára veg­ferð

Isavia gerðist þátttakandi í UN Global Compact árið 2016 og hefur síðan þá unnið markvisst að því að styrkja ábyrg viðskiptahætti og gagnsæi í starfseminni. Árlega skilar félagið framvinduskýrslu (Communication on Progress) þar sem gerð er grein fyrir því hvernig meginreglurnar eru innleiddar og hvernig Isavia styður við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Þessi vinna hefur orðið órjúfanlegur hluti af stefnumótun og daglegum rekstri félagsins. Þetta nær allt frá mannauðsmálum og umhverfisáætlunum til innkaupa, rekstrar og samskipta við hagaðila.

Í tilefni af heimsókn Söndru Ojiambo var fána UN Global Compact flaggað við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli.

Hringborðsfundur með leiðtogum íslenskra fyrirtækja

Í heimsókn sinni til Íslands hitti Sanda Ojiambo forstjóra leiðandi íslenskra fyrirtækja, þar á meðal Sveinbjörn Indriðason, forstjóra Isavia, á sérstökum hringborðsfundi. Þar fór fram opið samtal um:

  • Forystu
  • Viðnámsþrótt
  • Samkeppnishæfni
  • Traust í atvinnulífi

Sanda starfar daglega með forstjórum alþjóðlegra fyrirtækja og fjárfestum og hefur því einstaka yfirsýn yfir hvernig leiðandi fyrirtæki bregðast við hraðri tækniþróun, auknum kröfum um ábyrgð og breyttu rekstrarumhverfi. Fundurinn gaf íslenskum fyrirtækjum tækifæri til að deila reynslu sinni af því að leiða starfsemi í gegnum óvissu og breytingar, reynslu sem getur haft gildi langt út fyrir landsteinana.

Leið­toga­fund­ur

Fána UN Global Compact var flaggað við flugstöðina á Keflavíkurflugvelli í tilefni af Íslandsheimsókn Söndru Ojiambo, forstjóra UN Global Compact.
Myndir: Silla Páls
Myndir: Silla Páls
Myndir: Silla Páls
Myndir: Silla Páls