Aðalfundur Isavia, tækifæri til framtíðar

Formaður stjórnar
Í ávarpi sínu fór Steinþór Pálsson, stjórnarformaður Isavia, yfir starfsemi Isavia samstæðunnar í tölum. Farþegar voru ríflega 8,8 milljónir á öllum flugvöllum samstæðunnar, 28 flugfélög flugu um KEF í fyrra og áfangastaðirnir voru hundrað talsins. Í ávarpi í ársskýrslu Isavia sagði Steinþór rekstrarumhverfi flugvalla geta verið sveiflukennt frá ári til árs. Síðasta ár hafi ekki verið nein undantekning. Breytingar í starfsemi flugfélaga, þar á meðal gjaldþrot Play, hafi haft áhrif á farþegafjölda og minnt á að starfsemi flugvalla sé að verulegu leyfi háð ytri aðstæðum. Þegar horft sé til lengri tíma sé þó ljóst að undirliggjandi þróun bendi áfram til vaxtar.
Forstjóri Isavia
Á fundinum fór Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, yfir ársreikning félagsins og uppfærða stefnuframsetningu þess. Megin stefnuáherslur Isavia eru að viðskiptavinir séu í fyrirrúmi, liðsheild félagsins sé árangursdrifin, vöxturinn sé arðbær, sjálfbærni sé sett í öndvegi og flugöryggi og vernd sé í forgangi.
Sveinbjörn fór einnig yfir uppbyggingu á Keflavíkurflugvelli (KEF) og markaðstækifæri framundan. Hann fór yfir raunfarþegafjölda og uppfærða eftirspurn til framtíðar.
Eftirspurn eftir flugi til, frá og um KEF er meiri en núverandi sætaframboð stendur undir. Til að nýta þetta tækifæri er mikilvægt að bæta þjónustugæði í flugstöðinni á KEF og skilvirkni flugbrautakerfisins.
Sveinbjörn IndriðasonForstjóri Isavia

Framtíðarsýn
Þá vék Sveinbjörn að því að nýjar Airbus 321 XLR flugvélar Icelandair, sem teknar verði í notkun frá 2029, eigi til framtíðar eftir að styrkja tengingar KEF við vesturströnd Bandaríkjanna umfram aðra tengiflugvelli sem KEF sé í beinni samkeppni við. Staðsetning Keflavíkurflugvallar verði þar mikið forskot í baráttunni um tengifarþega og tengingar til framtíðar. Fleiri nýir áfangastaðir og nýjar tengingar auki hagvöxt með beinum hætti.
Með þá framtíðarsýn til hliðsjónar sé mikilvægt að uppbygging á KEF miði við að bæta gæði hliða á vellinum, efla þjónustu og auka skilvirkni flugbrautarkerfisins.
Ný stjórn kosin
Á aðalfundinum voru eftirfarandi kosin í stjórn Isavia ohf: Steinþór Pálsson, stjórnarformaður, Gréta María Grétarsdóttir, Hera Grímsdóttir, Marta Jónsdóttir og Ólafur Njáll Sigurðsson. Sigrún Dóra Sævinsdóttir og Bjarni Herrera voru endurkjörin í varastjórn félagsins. Ólafur Njáll Sigurðsson kemur nýr í stjórn Isavia en Ómar Svavarsson gengur úr stjórn.
