Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Æfðu viðbrögð við truflun á flugumferð

Isavia stóð nýverið fyrir umfangsmikilli samhæfingaræfingu þar sem reynd var geta íslenska flugvallarsamfélagsins til að bregðast við aðstæðum sem gætu leitt til þess að millilandaflug þyrfti að beina frá Keflavíkurflugvelli til annarra flugvalla á Íslandi.

Markmið æfingarinnar var að styrkja samhæfingu, upplýsingamiðlun og sameiginlega stöðumynd þeirra fjölmörgu aðila sem koma að rekstri og þjónustu á íslenskum flugvöllum. 

Æfingin fór fram á hefðbundnum starfsstöðvum þátttakenda þar sem unnið var með raunhæfar forsendur, verklag, samskiptaleiðir og kerfi sem notuð eru við raunveruleg atvik. Meðal þátttakenda voru Neyðarstjórn Isavia, Innanlandsflugvellir, Avians, flugturninn á Keflavíkurflugvelli, Icelandair og fjölmargir aðrir samstarfs- og viðbragðsaðilar sem gegna lykilhlutverki í starfsemi íslenskra flugvalla. 

Í æfingunni var meðal annars reynt á miðlun upplýsinga milli aðila, samhæfingu vegna tilfærslu flugvéla, mat á afkastagetu innanlandsflugvalla og ákvarðanatöku við krefjandi aðstæður. Æfingarsviðsmyndin byggði á því að truflanir yrðu á starfsemi Keflavíkurflugvallar og að bregðast þyrfti við breytingum á flugumferð og þjónustu með skilvirkum hætti. 

Óvæntur en raunverulegur atburður varð jafnframt hluti af æfingunni þegar dekk á lítilli flugvél sprakk við lendingu á Reykjavíkurflugvelli. Í kjölfarið var flugvöllurinn tímabundið lokaður fyrir umferð. Atvikið var fellt inn í æfinguna og gaf þátttakendum tækifæri til að bregðast við breyttum forsendum í rauntíma, líkt og gerst getur í raunverulegu rekstrarumhverfi. 

Að lokinni æfingu fór fram sameiginleg rýni þar sem farið var yfir helstu lærdóma og reynslu þátttakenda.