Farðu hvert á land sem er frá KEF í sumar

2,6 milljón gestir
Gert er ráð fyrir að tæplega 2,6 milljón gestir fari um Keflavíkurflugvöll yfir hásumarið í ár, þ.e. í júní, júlí og ágúst. Flugfélög sem fara um KEF á tímabilinu verða 28 talsins og fljúga þau til 79 áfangastaða. Flugferðir til og frá vellinum verða samtals 16.880 talsins en það eru 8,1% færri ferðir en á sama tíma í fyrra og munar þar um brotthvarf flugfélagsins Play. Tæplega þrjár milljónir flugsæta verða í boði í júní til ágúst sem er 8,9% færri sæti en á sama tíma í fyrra. Þar munar einnig um flugsæti Play.
Nýir áfangastaðir og flugfélög
Oftast er flogið til Kaupmannahafnar, Óslóar, Lundúna, New York og Seattle í sumar. Þar til viðbótar eru margir nýir áfangastaðir í boði og aðrir kunnuglegir. Þá hafa ný flugfélög bæst við flugvallarsamfélagið á KEF. Bandaríska flugfélagið Alaska Airlines og Air Transat frá Kanada hafa hafið flug til og frá KEF. Alaska Airlines flýgur til Seattle daglega í sumar. Air Transat fer á milli KEF og Montréal.
Þessu til viðbótar bætir Icelandair við Faro í Portúgal, Feneyjum og Malaga. Wizz Air byrjar að fljúga til Vilníus í Litháen og Wroclaw í Póllandi. United Airlines hefur hafið flug til Dulles-flugvallar í Washington og easyJet bætir við Lyon í Frakklandi. Þá hefur WestJet bætt við áætlun sýna og flýgur til Edmonton og Winnipeg í Kanada.
Icelandair stærst
Í sumar býður Icelandair upp á flug til 54 áfangastaða frá Keflavíkurflugvelli. Þar af eru 37 áfangastaðir í Evrópu, 14 í Bandaríkjunum og þrír í Kanada. Það ætti því að vera úr nægu að velja fyrir ferðaþyrsta ferðalanga í leit að sumarævintýrum.
Forsvarsfólk Icelandair tilkynnti fyrir skömmu að félagið hefði undirritað samstarfssamning við kanadíska flugfélagið WestJet og viljayfirlýsingu við Aegean Airlines, stærsta flugfélag Grikklands. Þeir samningar opna á tengingar á milli leiðakerfa félaganna.
Icelandair verður í sumar með 64% af sætaframboði til og frá Keflavíkurflugvelli. Helsta breytingin á leiðakerfi félagsins er að nýju áfangastaðirnir Faro, Feneyjar og Malaga bætast við.

Play áhrifin
Það er óneitanlegt að brotthvarf Play hefur haft áhrif á flugframboð. Félagið var með ríflega 413 þúsund flugsæti í boði sumarið 2025 og flaug til 31 áfangastaðar. Af þeim er enn flogið til 21 þeirra nú í sumar en 10 áfangastaðir ekki í boði með beinu flugi frá KEF. Þessir tíu staðir voru 8,7% af framboði Play og því ljóst að stærstu áfangastaðir félagsins eru enn í boði frá KEF.
Erlendu flugfélögin bæta við sig
Önnur flugfélög á KEF sem eru saman með 36% af sætaframboði á vellinum hafa verið að spýta í lófana fyrir yfirstandandi sumar og bæta við áætlanir sínar.
SAS bætir við 170 flugum og 30 þúsund sætum. Það er 36% aukning frá fyrra sumri. Mesta viðbótin er frá Kaupmannahöfn þar sem nú er flogið tvisvar daglega. Þá bætir félagið einnig við flugi frá Ósló auk þess sem það flýgur frá Stokkhólmi yfir hásumarið.
Finnair bætir í og flýgur nú tólf sinnum í viku frá Helsinki.
Wizz Air eykur framboð um 37 þúsund sæti á tímabilinu og bætir við tveimur nýjum áfangastöðum. Flogið verður frá Vilníus tvisvar í viku og Wroclaw í Póllandi þrisvar sinnum. Þá bætir félagið við ferðum frá Katowice og áfram flýgur það frá Búdapest, Gdansk og Varsjá eins og áður.
United Airlines bætir við daglegu flugi milli KEF og Washington og þar með 33 þúsund flugsætum, sem er 59% aukning. Áfram er flogið til Chicago og New York/Newark.
Delta býður áfram uppá þrjá áfangastaði frá Keflavík, New York, Detroit og Minneapolis. Detroit verður nú daglegt í stað fimm sinnum í viku og tímabilið frá Minneapolis verður lengt.
Air Canada lengir tímabilið fyrir Montréal og Toronto.
WestJet heldur áfram með Calgary ásamt því að bæta við tveimur áfangastöðum í Kanada, Winnipeg og Edmonton. Báðir nýju áfangastaðirnir munu hafa beint flug einu sinni í viku yfir hásumarið. WestJet eykur sætaframboð um 26% milli ára.
British Airways bætir við 4 þúsund sætum til og frá London Heathrow sem er um 14% aukning milli ára.
easyJet eykur sætaframboð sitt til Keflavíkur um 39% og gera breytingar á leiðarkerfinu hjá sér. Framboðið frá Bretlandi er minna en í fyrra en félagið bætir við annarsstaðar í Evrópu. Flug frá París Orly flugvelli verða færð á París CDG og bætt við einu flugi í viku. Lyon í Frakklandi bætist við yfir hásumarið tvisvar í viku. Flug til Mílanó á Ítalíu verða tvisvar sinnum fleiri í hverri viku, en flogið verður átta sinnum í viku sem skilar sér í auknu sætaframboði.
Lufthansa mun fljúga níu sinnum í viku frá Frankfurt og auka sætaframboð sitt um 17% frá tengimiðstöð sinni í Þýskalandi.
Vueling bætir mikið í flug frá Barcelona frá því í fyrra og flogið verður allt sumarið tvisvar í viku. Samtals tæplega 5 þúsund sæti aukalega á tímabilinu sem er um 117% aukning frá fyrra ári.
LOT hóf flug til Keflavíkur frá Varsjá í Póllandi síðasta sumar og heldur áfram í sumar og bætir við einu flugi á viku og mun því fljúga milli KEF og Varsjár fimm sinnum í viku. Samtals eykst sætaframboð um tæplega 39% á tímabilinu.
Transavia France mun lengja tímabilið hjá sér frá Paris Orly flugvelli og munu nú fljúga einu sinni til þrisvar í viku yfir allt sumarið.
Transavia mun halda sömu áætlun og í fyrra frá Amsterdam en vegna breytinga á vélartýpu þá eykst sætaframboð um rúmlega 5%.
Austrian munu þá fljúga daglega frá Vín í Austurríki, aukning um tvö flug í viku yfir hásumarið. Með því eykst sætaframboð um 20%.
Discover, Norwegian, Jet2.com, Atlantic Airways og Edelweiss munu hafa nánast óbreytta áætlun í sumar samanborið við síðasta sumar.
Air Baltic mun eingöngu fljúga frá Riga í sumar en í fyrra prófaði félagið að bæta við flugum tvisvar í viku frá Tallinn sem verða ekki á áætlun í sumar. Þetta þýðir að sætaframboð með Air Baltic mun minnka um 29% í sumar eða um 5.800 sæti. Áætlun frá Riga helst óbreytt á milli ára.
Eurowings fljúga í sumar aðeins einu sinni í viku yfir hásumarið frá Düsseldorf og með því minnkar sætaframboð frá Düsseldorf um 7.000 sæti eða 74%.
Iberia þurfti að fækka flugum frá Madríd töluvert í sumar samanborið við síðasta sumar, en flogið verður tvisvar sinnum í viku yfir hásumarið. Framboð minnkar um um 2.600 sæti eða um 15 prósent.
Air Greenland mun ekki fljúga til Billund eins og í fyrra og mun því framboð hjá þeim dragast saman um 8.300 sæti eða 72 prósent.
Fjölmargar tengingar með erlendum félögum
Þó heildar framboð á flugsætum hafi dregist saman með brotthvarfi Play er ljóst að möguleikar ferðafólks hafa hvergi nærri minnkað.
Farþegar sem fara um KEF hafa ótalmarga möguleika til að komast á vit ævintýranna um víða veröld með mörgum þeirra erlendu flugfélaga sem fljúga til og frá KEF. Til austurs er hægt að fara með Air Baltic í gegnum Riga áfram um heiminn, með Austrian er hægt að ferðast í gegnum flugvöllinn í Vínarborg, British Airways um Heathrow í London, Discover í gegnum flugvöllinn í München, í gegnum Helsinki-flugvöll með Finnair, Lufthansa um Frankfurt, LOT í gegnum Varsjá, og SAS um Kaupmannahöfn.
Til vesturs eru það Amerísku flugfélögin, Air Canada, Alaska Airlines, Delta, United og WestJet. Þá er Icelandair með fjölda samstarfssamninga við flugfélög um allan heim, þar sem hægt er að ferðast á fjöldann allan af áfangastöðum í einum miða með millilendingu á einum eða fleiri flugvöllum.
Sumarið er tími tækifæranna og frá KEF er hægt að fara hvert á land sem er.
