Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Air China flýgur til KEF

Kínverska flugfélagið Air China hefur tilkynnt formlega um áætlunarflug milli Kína og Íslands sem hefst í lok október

Flogið verður þrisvar í viku milli Beijing og Keflavíkurflugvallar (KEF) með viðkomu í Kaupmannahöfn á báðum leiðum.

Nýja leiðin er mikilvægur áfangi í áframhaldandi uppbyggingu alþjóðlegs leiðakerfis Keflavíkurflugvallar og styður við markmiðið um að tengja heiminn í gegnum Ísland. Tengingin skapar ný sóknarfæri fyrir íslenska ferðaþjónustu, viðskipti og menningartengsl milli landanna. Við á KEF hlökkum til að taka á móti farþegum Air China.

Grétar Már GarðarssonForstöðumaður flugfélaga og markaðsmála á KEF