Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Air Transat bætist í hóp flugfélaga á KEF

Kanadíska flugfélagið Air Transat hefur ákveðið að hefja flug til Íslands.

Kanadíska flugfélagið Air Transat hefur ákveðið að hefja flug til Íslands. Flogið verður á milli Montreal í Kanada og Keflavíkurflugvallar flogið verður tvisvar í viku, mánudaga og miðvikudaga, frá 17. júní á næsta ári til 28. september. Þetta er í fyrsta sinn sem Air Transat flýgur til Íslands.

La Grande Roue de Montréal.
Montréal er ein af fallegustu borgum Kanada og býður upp á fjölbreytta möguleika fyrir ferðamenn.

Air Transat var stofnað árið 1986 og verður því fjörutíu ára á næsta ári. Það flýgur til um sextíu áfangastaða í tuttugu og fimm löndum. Höfuðstöðvar félagsins eru í Montreal í Québec-fylki í Kanada.

Það er okkur mikið gleðiefni að bjóða Air Transat velkomið í hóp flugfélaga á Keflavíkurflugvelli. Með þessari nýju viðbót aukum við enn við framboð af flugrekendum hér á landi. Flugleið þeirra til Montreal styrkir tengsl Íslands og Kanada og endurspeglar bæði vaxandi aðdráttarafl Íslands sem áfangastaðar og styrk Keflavíkurflugvallar.

Forstöðumaður flugfélaga og markaðsmála á Keflavíkurflugvelli. Grétar Már Garðarsson
Borgin er þekkt fyrir ríka matarmenningu og framúrskarandi þjónustu.
Montreal Biosphere