Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

AirBaltic bætir við beinu flugi milli KEF og Tallinn

Lettneska flugfélagið airBaltic hefur bætt við Tallinn í Eistlandi sem nýjum áfangastað á áætlun sinni frá Keflavíkurflugvelli næsta sumar.

Flogið verður vikulega á fimmtudögum milli KEF og Tallin. Fyrsta flug til KEF verður 14. maí 2025. Þetta er annar áfangastaður félagsins frá KEF en áður hefur airBaltic flogið frá Riga í Lettlandi.

Við á Keflavíkurflugvelli erum afskaplega ánægð að heyra af því að airBaltic hafi ákveðið að bæta í þjónustu sína hjá okkur.

Grétar Már GarðarssonForstöðumaður flugfélaga- og leiðaþróunar hjá KEF

„Tallinn er ný og spennandi viðbót í þann fjölda áfangastaða sem okkar flugfélög hafa upp á að bjóða. Þessi viðbót sýnir að airBaltic hefur mikla trú á Íslandi sem áfangastað. Félagið er mikils metinn samstarfsaðili okkar í flugvallarsamfélaginu á Keflavíkurflugvelli. Sú ákvörðun airBaltic að bæta við Tallinn er örugg vísbending um vaxandi samstarf okkar til framtíðar.“

Tallinn er höfuðborg og aðalhöfn Eistlands

Thomas Ramdahl, framkvæmdastjóri leiðakerfis hjá airBaltic, segir það spennandi verkefni að bæta við Tallinn sem nýjum áfangastað. „Við erum þakklát samstarfsaðilum okkar á Keflavíkurflugvelli fyrir gott samstarf í gegnum árin og hlökkum til að bjóða íslenskum ferðalöngum upp á enn meira úrval af þægilegum ferðamöguleikum til að kanna Eystrasaltsríkin.“

Gamli bærinn í Tallin

AirBaltic rekur meira en 130 flugleiðir frá Riga, Tallinn, Vilnius, Tampere og tímabundið frá Gran Canaria, sem bjóða tengingar til margvíslegra áfangastaða í leiðakerfi flugfélagsins í Evrópu, Miðausturlöndum, Norður-Afríku og Kákasus.

Um Keflavíkurflugvöll

Keflavíkurflugvöllur er stærsti alþjóðaflugvöllur Íslands og þjónustar milljónir gesta ár hvert. Isavia, sem rekur flugvöllinn, leggur áherslu á að bjóða upp á framúrskarandi þjónustu og góða upplifun gesta. Markmiðið er að gestir njóti flugvallarins sem best og fái einstaka ferðaupplifun.