Alaska Airlines hefur daglegt flug til KEF næsta sumar

Bandaríska flugfélagið Alaska Airlines mun hefja beint flug á milli Keflavíkurflugvallar (KEF) og Seattle sumarið 2026. Áætlað er að fyrsta koma verði 29. maí og verður flogið daglega frá heimaflugvelli Alaska Airlines, Seattle-Tacoma (SEA) sem er mikilvægur tengiflugvöllur fyrir vesturhluta Bandaríkjanna og Kanada.
Við tökum fagnandi á móti Alaska Airlines sem mun styrkja enn frekar flugtengingar Keflavíkurflugvallar við Norður-Ameríku í gegnum heimavöll þeirra í Seattle. Með þessu mun valkostum þeirra sem vilja heimsækja Ísland og nota KEF sem tengistöð fjölga. Eftirspurn eftir flugi frá Norður-Ameríku heldur áfram að vaxa og koma Alaska Airlines sýnir aðdráttarafl Íslands sem einstaks áfangastaðar og hversu öflug tengistöðin í Keflavík er orðin.
Guðmundur Daði Rúnarsson Framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli
Keflavíkurflugvöllur verður einn af fyrstu áfangastöðum Alaska Airlines í Evrópu frá og með næsta sumri.
Ísland verður ávallt á óskalista ævintýragjarnra ferðalanga og útivistarfólks, ásamt því að Keflavíkurflugvöllur verður gestum okkar mikilvægur tengipunktur við Evrópu.
Ben MinicucciForstjóri Alaska Airlines

Forstjóri Alaska Airlines segir einnig að með beinu flugi til KEF næsta sumar sé flugfélagið að stíga mikilvægt skref í átt að framtíðarsýn félagsins um að tengja gesti sína við heiminn með framboði í alþjóðaflugi.
Seattle-Tacoma (SEA) er mikilvægur tengiflugvöllur fyrir vesturströnd Bandaríkjanna og víðar í Norður-Ameríku. Alaska Airlines er stærsta flugfélag vallarins og bjóða yfir 300 brottfarir daglega til 60 áfangastaða í Norður-Ameríku, meðal annars allra helstu borga vesturstrandar Bandaríkjanna. Með komu Alaska Airlines opnast því betri tengingar fyrir ferðalanga sem vilja heimsækja Ísland eða nýta KEF sem tengistöð við áfangastaði í Evrópu.
