Alaska Airlines komið til KEF
Flýgur daglega milli KEF og Seattle í sumar

Bandaríska flugfélagið Alaska Airlines hóf beint flug milli Keflavíkurflugvallar (KEF) og Seattle þann 29. maí síðastliðinn. Þetta er í fyrsta sinn sem félagið flýgur til Íslands og er KEF einn af fyrstu áfangastöðum Alaska Airlines í Evrópu. Flogið er daglega í sumar milli KEF og heimaflugvallar Alaska Airlines, Seattle-Tacoma (SEA) sem er mikilvægur tengiflugvöllur fyrir vesturhluta Bandaríkjanna og Kanada.
Fyrstu flugvél félagsins hingað til lands var fagnað með heiðursvatnsboga þegar henni var ekið á akstursbraut eftir lendingu. Farþegum í fyrsta fluginu frá KEF var boðið upp á léttar veitingar áður en farið var um borð.





