Ársskýrsla Isavia 2025

Áratugur með GRI
Ársskýrsla Isavia er nú aðgengileg á vef félagsins. Hún var formlega gefin út á aðalfundi Isavia ohf. sem haldinn var í dag. Ársskýrslan markar tímamót í upplýsingagjöf félagsins. Frá árinu 2016 hefur Isavia fylgt meginreglum Global Reporting Initiative (GRI) við gerð ársskýrslu og hefur því í áratug birt sjálfbærniupplýsingar fyrir hagaðila með skipulögðum og viðurkenndum hætti.
Áhersla er lög á gagnsæi, ábyrgð og áreiðanleika í miðlun upplýsinga um stjórnarhætti og áhrif starfseminnar á umhverfi, samfélag og efnahag. Með markvissum aðgerðum og aukinni þekkingu hefur félagið bætt yfirsýn og færst nær því að ná heildstæðri mynd af áhrifum sínum og þannig sett sjálfbærni í öndvegi. Sú vegferð birtist í ársskýrslum félagsins síðastliðinn áratug.
Í skýrslunni má, auk upplýsinga um sjálfbærni, finna ársreikning samstæðunnar, lykiltölur úr rekstrinum, yfirferð yfir stefnu og stjórnun Isavia og lífið innan flugvallarsamfélagsins. Skýrslan gefur því góða mynd af starfsemi samstæðunnar.