Ársuppgjör Isavia fyrir árið 2025

Aukningin nemur um 1,5 milljörðum króna. Tekjur samstæðunnar lækkuðu um 2,7 milljarða króna milli ára og námu 49,3 milljörðum króna. Heildarafkoma tímabilsins var jákvæð um 3,4 milljarða króna samanborið við jákvæða afkomu upp á um 5,2 milljarða króna fyrir sama tímabil í fyrra. Árið 2025 voru gengisáhrif neikvæð upp á 0,9 milljarða samanborið við jákvæð gengisáhrif á árinu 2024 upp á 2,1 milljarði króna. Fjárfestingar samstæðunnar námu um 12,6 milljörðum króna á árinu samanborið við 18,0 milljarða á síðasta ári.
Ingibjörg Arnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála hjá Isavia, segir að afkoma félagsins á síðasta ári hafi verið góð þrátt fyrir áskoranir.
Á síðasta ári fóru um 8,2 milljónir farþega um Keflavíkurflugvöll sem er um 2% fækkun á milli ára. Það er ljóst að brotthvarf Play í lok september hafði áhrif á rekstur Isavia. Rétt er þó að hafa í huga að Play hafði nokkru áður boðað breytingar á rekstri, þ.e. fækkun áfangastaða og breyttar áætlanir. Það má því segja að við á Keflavíkurflugvelli höfum verið viðbúin að einhverju leyti. Þá er stærri hluti þeirra farþega sem upp á vantar í hópi tengifarþega, þannig að áhrifin á tekjur okkar eru minni en ella.
Ingibjörg ArnarsdóttirFramkvæmdastjóri fjármála
Í sumar munu 27 flugfélög fljúga til 80 áfangastaða og 20 flugfélög til 65 áfangastaða í vetur.
Lykiltölur úr ársuppgjöri samstæðu Isavia 2025
- Rekstrartekjur: 49.262 milljónir króna
- Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA): 12.156 milljónir króna
- Heildarafkoma eftir skatta: 3.389 milljónir króna
- Handbært fé: 5.470 milljónir króna
- Fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum: 11.451 milljónir króna
- Eigið fé í lok tímabils: 52.684 milljónir króna
- Eiginfjárhlutfall: 43,4%
Aðalfundur Isavia verður haldinn 26. mars næstkomandi og þá verður ársskýrsla félagsins fyrir árið 2025 gefin út.