Austurálma formlega opnuð

Ný austurálma hefur formlega verið opnuð á Keflavíkurflugvelli. Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra opnaði álmuna en viðbyggingin stækkar flugstöðina um 30% og stórbætir aðstöðu á flugvellinum.
„Austurálman, sem við opnum formlega í dag, er ekki aðeins enn eitt skrefið í uppbyggingu flugvallarins, heldur áþreifanleg staðfesting á framtíðarsýn um að hann verði alþjóðleg tengistöð milli Evrópu og Norður-Ameríku,“ sagði Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra þegar hann opnað nýja austurálmu Keflavíkurflugvallar með formlegum hætti. Hann sagði alþjóðleg tengsl og samgöngur vera undirstöðu hagvaxtar og velsældar á Íslandi því hefði landið mikla hagsmuni af greiðum og öflugum samgöngum til og frá landinu.
Austurálman, ný viðbygging við flugstöð Keflavíkurflugvallar, stækkar flugstöðina um 30% og stórbætir aðstöðu á flugvellinum. Með henni getur Keflavíkurflugvöllur stutt betur við vöxt flugfélaga og annarra viðskiptavina samhliða því að bæta upplifun gesta.
