AVSEC fundur ACI á Íslandi

100 sérfræðingar
Dagana 28.–29. maí fór fram 55. fundur flugöryggisnefndar evrópudeildar alþjóðasamtaka flugvalla (e. ACI Europe Aviation Security Committee), og fékk Keflavíkurflugvöllur þann heiður að vera gestgjafi í þetta sinn. Fundurinn var haldinn í Reykjavík og á Keflavíkurflugvelli og sóttu hann yfir 100 sérfræðingar frá flugvöllum og fyrirtækjum víðs vegar um Evrópu. Þar var fjallað um helstu áskoranir og þróun í flugverndarmálum, sem eru sífellt mikilvægari þáttur í rekstri og öryggi flugvalla.
Nefndin kemur saman tvisvar á ári og gegnir lykilhlutverki í að móta stefnu ACI Europe í flugverndarmálum, fylgjast með áhættu og ógnum sem tengjast almenningsflugi og stuðla að samráði og miðlun þekkingar milli flugvalla. Nefndin vinnur jafnframt að því að hafa áhrif á evrópska löggjöf og reglugerðir og tryggja að sjónarmið flugvalla heyrist í stefnumótun.
Fulltrúar Isavia tóku virkan þátt í dagskránni. Rætt um menningarvegferð Keflavíkurflugvallar og hvernig hún styður við öflugt öryggisstarf og fyrirkomulag fjarskimunar á farangri á KEF og þær tæknilausnir sem þar eru nýttar.
Á seinni degi fundarins var hópnum boðið í vettvangsferð á Keflavíkurflugvöll. Þar var m.a. farið um svæði Landhelgisgæslunnar, flugstöðina og nýjar skrifstofur á fjórðu hæð austurálmu flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli.
Fundurinn tókst afar vel og lýstu þátttakendur ánægju með bæði faglega dagskrá og tækifærið til að heimsækja Ísland og kynnast starfsemi Keflavíkurflugvallar nánar.


