Bætt komusvæði með vorinu

Í liðinni viku hófust framkvæmdir við nýja og endurbætta afgreiðslu fyrir bílaleigur í flugstöðvarbyggingunni og skömmu áður höfðu framkvæmdir við svokallaðan tollagang hafist. Þá er framkvæmdum nýlega lokið við nýja þægindavöruverslun sem var opnuð í komusal flugstöðvarinnar fyrir jól. Samhliða þessu er unnið að því að stækka anddyri flugstöðvarinnar, komu megin. Allt er þetta gert með það að markmiði að bæta flæði og auka þægindi flugvallargesta sem og þeirra sem starfa á flugvellinum.
Svæðið sem um ræðir er að miklu leyti eitt það elsta óbreytta í flugstöðinni. Það hefur tekið litlum breytingum í áratugi en sístækkandi umsvif flugvallarins kalla á að nú verði því breytt. Áhersla er lögð á að framkvæmdirnar hafi sem minnst áhrif á gesti og starfsemi flugvallarins þó að tímabundið rask sé að einhverju leyti óhjákvæmilegt.
Á meðan á framkvæmdum við bætta aðstöðu fyrir bílaleigur stendur hefur afgreiðsla þeirra verði færð í tímabundna aðstöðu rétt fyrir utan flugstöðina. Gert er ráð fyrir að framkvæmdum við þær ljúki með vorinu þegar nýjar afgreiðslur verða teknar í notkun. Um leið fjölgar bílaleigum sem eru með aðstöðu inni í flugstöðinni úr þremur í fjórar.
Ætluð verklok annarra framkvæmda eru einnig á vordögum.
Nánari upplýsingar um uppfærslu á komusvæði er að finna hér.
