Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Lengri bið í öryggisleit vegna aukins fjölda farþega

Möguleiki á lengri bið í öryggisleit en vanalega

Gera má ráð fyrir töluverðum fjölda farþega í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli um þessa dagana. Áætlað er að margir þeirra gesta sem heimsótt hafa Ísland síðustu vikur vegna almyrkvans 12. ágúst séu að fara úr landi. Því má búast við lengri bið í öryggisleit en alla jafna. 

Allar öryggisleitarlínur á vellinum eru opnar og starfsfólk okkar á staðnum til að aðstoða farþega eftir fremsta megni.