Lengri bið í öryggisleit 14. ágúst
Möguleiki á lengri bið í öryggisleit en alla jafna föstudaginn 14. ágúst
Gera má ráð fyrir töluverðum fjölda farþega í flugstöðinni á Keflavíkurflugvelli að morgni föstudagsins 14. ágúst. Þann dag er áætlað að margir þeirra gesta sem heimsótt hafa Ísland síðustu vikur vegna almyrkvans 12. ágúst séu að fara úr landi. Því má búast við lengri bið í öryggisleit en alla jafna.
Allar öryggisleitarlínur á vellinum verða opnar og starfsfólk okkar verður til staðar til að aðstoða farþega eftir fremsta megni.
