Breytingar og bætt umferðaröryggi við KEF

Samtímis verður sú breyting á að hluti vegarins verður að einstefnu. Með þeirri breytingu eykst öryggi vegfarenda á svæðinu, hvort sem þeir eru gangandi, hjólandi eða akandi og betra flæði skapast. Framkvæmdirnar eru hluti af frekari breytingum sem framundan eru á aðkomusvæði flugvallarins í þessum tilgangi.
Breytingin er liður í því að auka öryggi þeirra sem um flugvallarsvæðið fara, en það hefur verið eitt af okkar forgangsmálum. Einstefnan sem nú tekur gildi er liður í stærri breytingum en með henni drögum við úr tvístefnu og umferð næst flugstöðinni og bætum um leið flæði umferðar á svæðinu.
Maren Lind Másdóttirframkvæmdastjóri flugvallarþróunar og innviða á Keflavíkurflugvelli
Þegar ekið er út af langtímabílastæðum (P3) við flugstöðina er eftir sem áður hægt að beygja í báðar áttir en eftir það tekur við einstefna til austurs og síðan norður um nýlegan vegkafla, út af flugvallarsvæðinu. Þetta þýðir að ökutæki sem koma af bílastæðasvæðinu komumegin (P2) sem og rútur á innri og ytri stæðum geta eingöngu beygt til austurs og ekið þannig af flugvallarsvæðinu. Nýi vegkaflinn sem áður var tekinn í notkun skapaði möguleikann á nýrri leið út af flugvallarsvæðinu og gerir einstefnuna mögulega.
Góð aðkoma að Keflavíkurflugvelli er mikilvæg öllum sem um flugvöllinn fara og framkvæmdir við hana eru hluti af heildar uppbyggingu Keflavíkurflugvallar. Sérstök uppbyggingaráætlun um aðkomusvæðið var samþykkt af stjórn Isavia haustið 2022 og tekur mið af þörfum og markmiði um bætta upplifun farþega. Stóru markmiðin eru að bæta ásýnd og upplifun við aðkomu að flugvellinum, bæta flæði og auka skilvirkni samgöngukerfisins.