Delta Air Lines bætir við daglegu flugi milli Boston og Keflavíkur á sumaráætlun 2027

Bandaríska flugfélagið Delta Air Lines hefur tilkynnt að félagið muni hefja daglegt áætlunarflug milli Boston Logan-flugvallar og Keflavíkurflugvallar þann 12. apríl 2027. Félagið mun fljúga milli Boston og KEF fram til 30. október 2027. Flogið verður milli áfangastaðanna á Boeing 757-200 flugvélum Delta.
Boston er ein af lykiltengimiðstöðvum Delta Air Lines fyrir flug til Evrópu og veitir farþegum aðgang að fjölbreyttu leiðakerfi innan Bandaríkjanna. Með nýju flugi til Keflavíkur bætist við enn einn valkostur fyrir ferðamenn sem vilja heimsækja Ísland eða halda áfram ferð sinni um Norður-Ameríku.
Delta hefur verið með áætlunarflug til Íslands frá árinu 2011 þegar félagið hóf beint flug milli New York og Keflavíkur. Nýja leiðin milli Boston og KEF er því mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu félagsins á Íslandi.
Við fögnum því mjög að Delta Air Lines bæti við daglegu flugi frá Boston til Keflavíkur. Boston-svæðið er einn mikilvægasti markaður okkar í Norður-Ameríku og með þessari nýju tengingu opnast enn fleiri möguleikar fyrir farþega til að ferðast til og frá Íslandi. Flugið styrkir tengingar Íslands við Bandaríkin og eykur samkeppnishæfni Keflavíkurflugvallar sem alþjóðlegrar tengimiðstöðvar
Grétar Már GarðarssonForstöðumaður flugfélaga og markaðsmála hjá Keflavíkurflugvelli