easyJet bætir við flugi frá Napólí

Fyrsta flugið verður 2. júní 2027 og flogið verður tvisvar í viku. Flugleiðin verður í boði fram í september og gefur farþegum fleiri tækifæri til að ferðast beint til Suður-Ítalíu yfir sumarmánuðina.
Nýja flugleiðin býður farþegum upp á enn fleiri tækifæri til að kanna Suður-Ítalíu. Hvort sem ferðinni er heitið til Napólí, meðfram Amalfi ströndinni eða til annarra spennandi áfangastaða í nágrenni borgarinnar.
Napólí er jafnframt góður upphafspunktur fyrir ferðalög um Kampaníu-hérað, þar sem meðal annars má finna Pompeii, Sorrento og eyjarnar Capri og Ischia.
Með nýju leiðinni bætist enn einn áfangastaður við framboð easyJet frá Keflavíkurflugvelli og gefst farþegum kostur á að tengjast Suður-Ítalíu með beinu flugi frá Íslandi.
Við fögnum því að easyJet bæti Napólí við leiðakerfi sitt frá Keflavíkurflugvelli sumarið 2027. Nýja leiðin styrkir enn frekar tengingar Íslands við Ítalíu og er skýrt merki um áframhaldandi vöxt og traust easyJet á íslenskum markaði.
Grétar Már GarðarssonForstöðumaður flugfélaga og markaðsmála hjá Keflavíkurflugvelli