Fánadagur heimsmarkmiðanna

Í dag, 25. september, er fánadagur heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun, sem er haldinn í annað sinn hér á landi. UN Global Compact og Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi standa að deginum.

Tilgangur fánadagsins er að minna á mikilvægi heimsmarkmiðanna og að fyrirtæki, stjórnvöld, stofnanir, félagasamtök, skólar og sveitarfélög um allan heim, sýni skuldbindingu sína við heimsmarkmiðin og aðgerðirnar sem þau krefjast.

Við höfum verið aðili að UN Global Compact frá árinu 2017. Með því skuldbindum við okkur til að vinna að tíu grundvallarviðmiðum Sameinuðu þjóðanna er varða samfélagslega ábyrgð á sviði mannréttinda, vinnumála, umhverfismála og aðgerða gegn spillingu. Við vinnum einnig markvisst með Heimsmarkmiðin og leggjum áherslu á markmið 8 Góð atvinna og hagvöxtur, 9 Nýsköpun og uppbygging, 13 Aðgerðir í loftlagsmálum og 17 Samvinna um markmiðin.


Níu ár eru liðin frá því að heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna voru samþykkt, alls 17 markmið sem eru leiðarvísir að betri heimi fyrir öll árið 2030. Til að sýna stuðning okkar við mikilvægi heimsmarkmiðanna, tökum við þátt í að flagga fána heimsmarkmiðanna á Keflavíkurflugvelli. Með samstilltu átaki getum við hraðað árangri og stuðlað að betri heimi fyrir öll.