454 þúsund gestir í febrúar
Farþegafjöldi í febrúar var 454.806 sem sem er 4,9% fækkun frá febrúar 2025. Alls hafa 899.298 gestir farið um Keflavíkurflugvöll fyrstu tvo mánuði ársins.

19 flugfélög og 58 áfangastaðir
Í febrúar flugu 19 flugfélög til 58 áfangastaða. Vinsælustu áfangastaðirnir voru London, Kaupmannahöfn, Manchester, París og Amsterdam.
Mest var að gera á flugvellinum 22. febrúar, þegar 20.822 farþegar lögðu leið sína um KEF.
Brottfarir erlendra gesta frá KEF voru um 147 þúsund í nýliðnum febrúar samkvæmt mælingum Ferðamálastofu. Samkvæmt tölum Ferðamálastofu eru það 0,9% færri brottfarir en í febrúar 2025. Um tvær af hverjum fimm brottförum má rekja til Breta og Bandaríkjamanna.
Brottfarir Íslendinga voru um 36 þúsund í febrúar, 11,4% færri en í sama mánuði í fyrra.