443 þúsund gestir í janúar

Í janúar 2026 fóru 443.492 gestir um Keflavíkurflugvöll (KEF), sem er 5,5% færri gestir en í sama tíma í fyrra. Alls flugu 16 flugfélög beint frá KEF til 56 áfangastaða í mánuðinum.
Vinsælustu áfangastaðirnir voru áfram London, Kaupmannahöfn, Manchester, New York og París. Mest var að gera 4. janúar, þegar 20.313 gestir fóru um flugvöllinn.
Brottfarir erlendra gesta frá KEF voru um 119 þúsund í janúar samkvæmt tölum frá Ferðamálastofu. Samkvæmt mælingum Ferðamálastofu eru það 1,8% færri brottfarir en í janúar 2025. Um tvær af hverjum fimm brottförum má rekja til Bandaríkjamanna og Breta. Brottfarir Íslendinga voru um 43 þúsund í janúar, um 7,6% færri en á sama tíma á síðasta ári.
Flestar brottfarir, eða um 24 þúsund, voru vegna Bandaríkjamanna (um 20% af heild) en það eru 27,4% færri Bandaríkjamenn en í sama mánuði og í fyrra. Bretar voru í öðru sæti brottfararfarþega en 21 þúsund Bretar fóru frá landinu í janúar sem er 12% fjölgun frá fyrra ári (17,6% af heild). Kínverjar voru í þriðja sæti með um 9 þúsund brottfarir og voru 7,9% færri en í janúar í fyrra (7,5% af heild).