Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

654 þúsund gestir í maí

Við tókum á móti 654.281 gestum á Keflavíkurflugvöll (KEF) í maí 2026.

Maí 2026

Í maí 2026 fóru 654.281 gestir um Keflavíkurflugvöll (KEF), sem er 6,8% færri gestir en á sama tíma í fyrra. Alls flugu 24 flugfélög til 63 áfangastaða. Vinsælustu áfangastaðirnir voru Kaupmannahöfn, París, London og New York. Mest var að gera á flugvellinum 31.maí, þegar 25.632 farþegar lögðu leið sína um KEF.

Brottfarir erlendra gesta frá KEF voru um 163.000 þúsund í nýliðnum maí. Samkvæmt tölum Ferðamálastofu eru það 0.40% færri brottfarir en í maí 2025.

Um 52 þúsund Bandaríkjamenn fóru frá landinu í maí, sem samsvarar 31,8% allra brottfara erlendra farþega. Fjöldinn var þó nær óbreyttur frá sama mánuði í fyrra og dróst lítillega saman, eða um 1,8%. Ferðir Íslendinga utan frá áramótum voru um 248 þúsund, sem er 14,5% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra.