Fjölskylduvæn ferðaupplifun frá upphafi til enda

Á Keflavíkurflugvelli leggjum við mikla áherslu á að gera dvöl fjölskyldna með börn sem þægilegasta. Fyrir unga ferðalanga getur bið eftir flugi verið spennandi – en stundum líka krefjandi – og því skiptir máli að umhverfið sé bæði skemmtilegt og áhugavert.
Við bjóðum upp á fjölbreytta afþreyingu sem gerir ferðalagið ánægjulegra – bæði áður en lagt er af stað og sem má taka með í flugið.

Leiksvæði fyrir öll
Í brottfararsalnum eru leiksvæði sem henta vel fyrir börn á leikskólaaldri og yngri grunnskólabörn. Þar geta yngstu ferðalangarnir dundað sér í leiktækjunum á meðan foreldrar og aðstandendur hafa það náðugt á setusvæðinu í kring. Leiksvæðin eru hlýleg, örugg og staðsett nálægt veitingastöðum sem bjóða ljúffenga og fjölskylduvæna matseðla.

iWall leikskjár
Við Aðalstræti í austurálmu bíður spennandi viðbót – iWall leikskjár með fjölbreyttum hreystileikjum fyrir börn á aldrinum 6-13 ára. Öll eru þó velkomin að prófa! iWall er gagnvirkt leiktæki þar sem leikmenn stíga beint inn í ævintýrið og stýra leikjum með eigin hreyfingum. Frábær leið til að hreyfa sig, skemmta sér og láta tímann fljúga á meðan beðið er eftir flugi.

KEF færir börnum töfraheim Tulipop
Í sumar opnar glænýtt leiksvæði í nýrri austurálmu Keflavíkurflugvallar, hannað af Tulipop í samstarfi við ÞYKJÓ og IRMA. Svæðið er mótað sérstaklega fyrir börn og fjölskyldur og byggir á litríkum og skapandi heimi Tulipop. Leiksvæðið er hugsað sem skemmtilegt skjól innan vallarins – staður sem örvar ímyndunarafl, sköpun og leikgleði – og gerir biðtímann að eftirminnilegri upplifun fyrir yngstu ferðalangana.

Á flugi – hvernig má stytta flugtíma barna?
Góð afþreying getur gert ferðalagið bæði auðveldara og skemmtilegra fyrir alla fjölskylduna. Í bloggfærslu frá Elko má finna fjölbreyttar og gagnlegar tillögur að afþreyingu fyrir börn í flugi – bæði með og án skjánotkunar:
Barnakerrur á vellinum
Vissir þú að hægt er að fá lánaða barnakerru á flugvellinum? Þannig geturðu innritað þína kerru en fengið lánaða kerru meðan á dvöl þinni á flugvellinum stendur. Kerrurnar er hægt að finna víðs vegar um flugstöðina og öllum farþegum er frjálst að grípa til þeirra sé þeirra þörf.

Ævintýrið hefst í KEF
Hvort sem fjölskyldan er að leggja í langferð, fara í frí eða snúa aftur heim, viljum við á Keflavíkurflugvelli tryggja að upplifunin verði sem ánægjulegust – líka fyrir litlu ævintýrafarana. Við vinnum stöðugt að því að bæta aðstöðu og þjónustu fyrir börn og fjölskyldur – og hlökkum til að bjóða ykkur velkomin í ævintýrið.