Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Flughlaðið við austurálmu prófað

ORAT-prófun á flughlaðinu við austurálmu flugstöðvarinnar fór fram. Markmiðið var að ganga úr skugga um að allir ferlar og búnaður væru tilbúin fyrir opnun austurálmu fyrir farþega.

Í gær, þriðjudaginn 4. febrúar, fór fram svokölluð ORAT-prófun á flughlaðinu við austurálmu flugstöðvarinnar. Markmiðið var að ganga úr skugga um að allir ferlar og búnaður væru tilbúin fyrir opnun austurálmu fyrir farþega.

Ný austurálma verður tekin í notkun að fullu á næstu vikum. Austurálman felur í sér nærri 30% stækkun flugstöðvarinnar og er hún lykilþáttur í framtíðarþróun flugvallarins. Með henni bætast við fjórir nýir landgangar og tvö rútuhlið sem bæta afgreiðslu flugvéla og auka upplifun farþega.

Við ORAT-prófun á flughlaðinu var byrjað á því að hreinsa snjó af flughlaðinu og að því loknu keyrðu tvær flugvélar á stæði 80L og 80R við austurálmu.

Leiðbeiningarbúnaður og tenging við landgöngubrýr voru prófuð, sem og festingar á jörðu niðri. Þá voru verkferlar við eldsneytisgjöf, fermingu og affermingu farangurs prófaðir sem og notkun stiga og farþegabifreiða á svæðinu. Að lokum fóru vélarnar báðar í gegnum afísingarferli.

Prófunin gekk vel og er það góðs viti fyrir opnun þessa áfanga austurálmunnar.

Ný aust­ur­álma

Austurálman felur í sér nærri 30% stækkun flugstöðvarinnar. Stækkun Keflavíkurflugvallar er ákvörðuð eftir langtímaspám um farþegafjölda og þarfir samfélagsins.

Framkvæmdir við Austurálmu hófust í sumarbyrjun 2021 og verður hún tekin í notkun í tveimur áföngum. Um mitt ár 2023 var nýtt farangursflokkunarkerfi í kjallara tekið í notkun sem og nýr komusalur með farangursmóttöku fyrir farþega. Nýtt veitingasvæði og stærri komuverslun Fríhafnarinnar opnuðu árið 2024. Í ár verða nýir landgangar og tvö rútuhlið tekin í notkun.

Fullkláruð verður austurálman stærri en upphaflega flugstöðvarbyggingin sem vígð var árið 1987. Til að átta sig á raunverulegum stærðum má hafa það bak við eyrað að Austurálman er 124,5 metra löng eða álíka og Bankastræti í Reykjavík, 66 metra breið, sem er svipað og knattspyrnuvöllur, og 31 metra há en til samanburðar er Akureyrarkirkja 26 metrar á hæð.

Um ORAT próf­an­ir

ORAT stendur fyrir Operational Readiness and Airport Transfer. ORAT-ferlið er áhrifaríkt ferli til að styðja við farsæla innleiðingu á nýjum mannvirkjum og innviðum flugvallarins. Með skipulagningu á prófunum fyrir opnun nýrra innviða tryggjum við að mannvirkið sjálft sé tilbúið og að fólk, ferlar, kerfi og mannvirkið virki saman.