Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Gerðu Keflavíkurflugvöll öruggari saman

Öryggisdagar flugvallarsamfélagsins á Keflavíkurflugvelli náðu hápunkti í dag með hinni árlegu FOD göngu, sem fram fór með virku og góðu samstarfi við flugvallarsamfélagið.

FOD ganga á Kefla­vík­ur­flug­velli

Öryggisdagar flugvallarsamfélagsins á Keflavíkurflugvelli náðu hápunkti í dag með hinni árlegu FOD göngu, sem fram fór með virku og góðu samstarfi við flugvallarsamfélagið.

Starfsmenn gengu saman um svæðið, leituðu að FOD eða aðskotahlutum og tóku þannig virkan þátt í að efla öryggi flugvallarins. Gangan var hluti af viðburðum tileinkuðum öryggisvitund, umhverfisvernd og brunavörnum sem haldnir hafa verið dagana 26.–28. maí.

FOD stendur fyrir Foreign Object Debris, eða aðskotahluti sem geta reynst hættulegir á svæðum flugvalla. Slíkir hlutir, jafnvel smávægilegir, geta valdið verulegu tjóni og slysum. Frægt dæmi er slysið á Concorde-þotunni árið 2000, sem mátti rekja til lítils málmbrots á flugbraut. Markmið göngunnar var því bæði að auka vitund og tryggja öryggi í flugi með því að fjarlægja mögulega hættulega aðskotahluti af brautum flugvallarins. 

Starfsmenn gengu saman um svæðið, leituðu að FOD eða aðskoðtahlutum og tóku þannig virkan þátt í að efla öryggi í flugi. Fyrir marga var þetta jafnframt einstakt tækifæri til að sjá flugvöllinn frá nýju sjónarhorni og taka beinan þátt í mikilvægu öryggisverkefni. Gangan tók um 30 mínútur og í kjölfarið var boðið upp á hressingu fyrir þátttakendur. Einnig voru veitt sérstök verðlaun fyrir þann sem fann skrýtnasta aðskotahlutinn.

FOD göngunni lauk með ánægjulegri samveru og jákvæðri stemningu meðal starfsfólks, sem á sinn þátt í að tryggja að Keflavíkurflugvöllur sé áfram öruggur og vel vaktaður staður.

Öryggisdagarnir halda áfram að undirstrika mikilvægi öryggismála og virkrar þátttöku starfsfólks. Á mánudegi var lögð áhersla á brunavarnir og rýmingu, með slökkvitækjaþjálfun í boði og á þriðjudegi var vakin athygli á öryggisvitund með myndskeiði þar sem starfsfólk deildi reynslu sinni. Lokaorð dagsins í dag voru skýr: „Sérðu eitthvað – gerðu eitthvað.“ Með sameiginlegu átaki tryggjum við öryggi allra sem starfa og ferðast um flugvöllinn.