Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Fyrsta Airbus þota Icelandair lenti á Keflavíkurflugvelli

Það var söguleg stund þegar fyrstu Airbus-þotu í sögu Icelandair var lent á Keflavíkurflugvelli í vikunni.

Það var söguleg stund þegar fyrstu Airbus-þotu í sögu Icelandair var lent á Keflavíkurflugvelli í vikunni. Áður en hún kom inn til lendingar í Keflavík var henni flogið yfir höfuðborgarsvæðið þannig að hægt var að virða hana fyrir sér á flugi. Þotan er af gerðinni A321LR og ber skráningarnúmerið TF-IAA. Hún hefur verið nefnd Esja.

Það var fjölmennt á flughlaðinu þegar vélin var lent og inni í flugstöðinni var tekið vel á móti áhöfninni með blómvöndum. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, umvafði hópinn og fagnaði nýjustu viðbótinni í flugflota félagsins.

Í tilkynningu frá Icelandair er haft eftir Boga að með tilkomu Airbus flugvéla í flota félagsins skapist mikil tækifæri á næstu árum.

Ekki bara fyrir Icelandair heldur einnig fyrir Ísland sem ferðamannaland og tengimiðstöð í flugi milli Evrópu, Norður-Ameríku og jafnvel enn lengra. Við bindum miklar vonir við þessar öflugu, langdrægu og sparneytnu vélar og hlökkum til að bjóða farþega okkar velkomna um borð.

Bogi Nils BogasonForstjóri Icelandair

Við á Keflavíkurflugvelli tókum þátt í að gera heimkomu þotunnar sem veglegasta og glöddumst með öllu flugvallarsamfélaginu.

Það er mikið ánægjuefni að fagna þessum merku tímamótum með samstarfsfélögum okkar hjá Icelandair. Þessi nýja Airbus þota er glæsileg viðbót í flota félagsins.

Anna Björk BjarnadóttirFramkvæmdastjóri þjónustu og rekstrar á Keflavíkurflugvelli