Beint í efni
Keflavíkur Flugvöllur

Air China tengir KEF við Asíu – fyrsta flug milli Peking og KEF í dag

Kínverska flugfélagið Air China hóf í dag, mánudaginn 26. október 2026, áætlunarflug milli Peking og Keflavíkurflugvallar með viðkomu í Kaupmannahöfn. Flugfélagið mun fljúga þrisvar í viku allan ársins hring og færir leiðin KEF beina tengingu við eitt stærsta markaðssvæði heims.

Kínverska flugfélagið Air China hóf áætlunarflug milli Peking og Íslands með viðkomu í Kaupmannahöfn mánudaginn 26. október 2026. Þar með bættist mikilvæg ný Asíutenging við leiðakerfi Keflavíkurflugvallar og markar það tímamót fyrir KEF, íslenska ferðaþjónustu, atvinnulíf og alþjóðleg samskipti. 

Air China mun fljúga þrisvar í viku milli Peking og Keflavíkurflugvallar. Nýja leiðin tengir Ísland við eitt stærsta markaðssvæði heims og eykur jafnframt aðgengi ferðamanna frá Kína og öðrum mörkuðum Asíu að Íslandi og opnar nýja heima fyrir ferðalanga frá Íslandi. 

Þetta er stór áfangi fyrir Ísland og KEF. Tengingin við Kína styrkir stöðu Íslands sem áfangastaðar og skapar ný tækifæri fyrir ferðaþjónustu, viðskipti og aukin samskipti milli landanna. Við erum afar ánægð að taka á móti Air China og hlökkum til farsæls samstarfs á komandi árum.
Alþjóðasamtök flugvalla í Evrópu hafa sýnt fram á að 10% aukning í flugtengingum auki hagvöxt um 0,5% og fjölgi störfum um 1,6%. Tengistöðin á Keflavíkurflugvelli er því einn meginstólpi hagsældar á Íslandi og þessi nýja tenging styður enn frekar við lífskjör í landinu.

Sveinbjörn IndriðasonForstjóri Isavia

Ómar Svavarsson, framkvæmdastjóri viðskipta hjá Keflavíkurflugvelli, segir komu Air China marka mikilvæg tímamót fyrir þróun leiðakerfis flugvallarins. 

Þessi nýja leið færir Keflavíkurflugvelli mikilvæga tengingu við Asíu og styrkir enn frekar alþjóðlega tengingu Íslands við umheiminn. Þessi viðbót í leiðakerfið okkar skapar verðmæt tækifæri bæði fyrir íslenskt atvinnulíf og ferðaþjónustu. Við höfum unnið markvisst að því að auka fjölbreytni í leiðakerfi KEF og það er sérstaklega ánægjulegt að sjá þessa tengingu verða að veruleika.

Ómar SvavarssonFramkvæmdastjóri viðskipta hjá Keflavíkurflugvelli

Komu fyrsta flugsins var fagnað á Keflavíkurflugvelli í dag. Farþegar og áhöfn Air China fengu hlýjar móttökur við lendingu í KEF.