Fríhafnarverslanir Heinemann opnaðar

Ein stærsta fjárfesting í ferðaþjónustuverslun hingað til
Gebr. Heinemann rekur þrjár verslanir á Keflavíkurflugvelli: brottfararverslun (um 1.600 m²), komuverslun (um 2.000 m²) og verslun við brottfararhlið. Lögð er áhersla á jákvæða upplifun viðskiptavina sem felst meðal annars í góðu aðgengi og þægindum fyrir viðskiptavini. Þá er lögð rík áhersla á fjölbreytt vöruúrval í helstu vöruflokkum eins og ilmvötnum og snyrtivörum, áfengi, sælgæti, tóbaki, og tísku- og lífsstílsvörum.
Á bilinu 120 til 160 starfsmenn starfa hjá Ísland Duty Free, allt eftir árstíma og álagi. Kostnaður við verslanirnar þrjár nam meira en 1,5 milljarði króna en breytingarnar og endurhönnunin eru þær viðamestu sem gerðar hafa verið á fríhafnarverslun á Keflavíkurflugvelli frá upphafi og ein stærsta fjárfesting í ferðaþjónustuverslun á Íslandi.
Íslenskar vörur í öndvegi
Hönnuninni á verslunum er ætlað að skapa ósvikna íslenska upplifun. Að minnsta kosti 30% allra vörumerkja í verslunum Ísland Duty Free eru íslensk og meira en 370 m² af verslunarrými eru tileinkaðir íslenskum vörum, íslenskri frásagnarlist og upplifun af íslenskum vörumerkjum. Arkitektúr, efnisval og vöruúrval var unnið í samvinnu við Basalt arkitekta, eina af þekktustu arkitekta- og hönnunarstofu Íslands, og endurspegla íslensku þjóðarsálina á sama tíma og þörfum alþjóðlegra farþega er mætt. Í miðju verslunarinnar er sérstakt svæði tileinkað íslenskum vörumerkjum í sérhönnuðu umhverfi.
Þá hafa verið sett upp svæði þar sem íslenskir hönnuðir og framleiðendur geta kynnt vörur sínar. Markmiðið er að veita innlendum framleiðendum tækifæri til að tengjast alþjóðlegum ferðamönnum og styrkja sýnileika íslenskrar nýsköpunar, handverks og frumkvöðlastarfs. Ferðalangar finna þannig þekkt íslensk nöfn á borð við Blue Lagoon Skin Science, BIOEFFECT, Nóa Síríus, Freyju, Saltverk, Circolo og Fischersund við hlið leiðandi alþjóðlegra vörumerkja eins og Sol de Janeiro, Maison Margiela, Summer Fridays, KESS, Parfums de Marly, Byredo, Diptyque, Tom Ford, Kérastase, Jo Malone London og LANEIGE í snyrtivörum og Neuhaus, Venchi, Summerbird, Godiva, Biscoff, Barebells, Ritter Sport og M&M's í sælgæti. Áfengisúrvalið spannar allt frá íslensku handverksbrennivíni til heimsþekktra alþjóðlegra framleiðenda.
Í fyrsta skipti eru vörumerki eins Kess, Byredo, Creed, Fugazzi Fragrances, Initio Parfums Privés, Kilian, Parfums de Marly, Xerjoff, Babor, Isntree, Venchi, Summerbird, Henriot og Louis Bouillot til sölu á Íslandi og fást þau eingöngu í verslunum Ísland Duty Free.
Stafræn nýsköpun og gagnvirkni
Í verslunum er lögð áhersla á gagnvirkar lausnir eins og svokallaða „lyftu og lærðu“ tækni (lift and learn) sem virkar þannig að þegar vara er tekin úr hillu birtast upplýsingar og áhugaverðar sögur á skjá sem auðveldar viðskipavinum að bera saman vörutegundir og veitir þeim frekari upplýsingar um vöruna. Í verslunum er einnig að finna sjálfs- og snjallsímaafgreiðslu, stafræna hillumiða og stafrænar verð- og tollkvótaleiðbeiningar.
Í komuverslun er lögð áhersla á hraða, skilvirkni og sparnað. Meðal nýjunga þar er færanlegur smakkbar fyrir sælgæti, sérstök „Rauð svæði“ (Red Zones) sem auðveldar aðgang að innlendum og alþjóðlegum tilboðum, snyrtivöruráðgjöf og staður til þess að taka sjálfu sem listamaðurinn Juan Arctic hannaði.
Þá er boðið upp á svokallað „Click & Collect“ (smella & sækja) og „Reserve & Collect“ (panta & sækja) á vefsíðu Ísland Duty Free og í verslunum má finna gagnvirk tæki sem aðstoða við að finna vörur og verð. Að auki gefst fólki tækifæri til að skrá sig í vildarfélag Ísland Duty Free sem býður upp á sérstök tilboð og verð fyrir meðlimi, ekki bara á Íslandi heldur í öllum fríhafnarverslunum sem Gebr. Heinemann rekur.
Notast við endurunnið plast úr sjónum
Lögð var áhersla á sjálfbærni í allri hönnun og framsetningu. Þannig var endurunnið efni nýtt í miklum mæli. Sem dæmi þá eru innréttingarnar frá spænska fyrirtækinu Nagami sem sérhæfir sig í framleiðslu með þrívíddarprentun úr endurunnu plasti sem að hluta til er fengið úr sjó. Þá er veggfóðrið í verslunum frá Omexco MINERALS en það er unnið úr endurunnum pappír og fínu glimmeri. Að auki er lýsingin orkusparandi og hillumiðarnir eru stafrænir. Í verslununum er svo Dopper-vatnsstöð þar sem fólk fær ókeypis áfyllingu af fersku kranavatni sem styður við hringrásarhagkerfið frá degi til dags. Dopper-vatnsstöðin var sett upp í samvinnu við ISAVIA.
tæðar rætur samfélagsins og stafræna upplifun sem er hönnuð með þarfir nútímaferðalangsins í huga.
Max HeinemannAnnar af forstjórum Gebr. Heinemann
Mikilvægur áfangi fyrir Keflavíkurflugvöll
Sveinbjörn Indriðason forstjóri Isavia fagnar samstarfinu og segir það mikilvægan áfanga fyrir Keflavíkurflugvöll: „Sú upplifun sem við bjóðum uppá á Keflavíkurflugvelli skiptir miklu máli þar sem flugvöllurinn er tengin okkar við umheiminn. Fjölbreytt og gott vöruúrval í fríhafnarversluninni gegnir þar lykilhlutverki og gerir flugvöllinn samkeppnishæfari. Heinemann býr yfir mikilli þekkingu og sérfræðikunnáttu á þessu sviði og við hlökkum til að bæta upplifun farþega enn frekar. Um leið sköpum við verðmæti fyrir íslensk vörumerki og landið allt.“
Jens Wolf, sölustjóri hjá Gebr. Heinemann, segir nýju ásýndina vera afrakstur náins samstarfs við birgja Gebr. Heinemann. „Þeir tóku framtíðarsýn okkar fagnandi strax í upphafi og með því að blanda saman sterkum íslenskum vörum og leiðandi alþjóðlegum vörumerkjum höfum við skapað úrval sem er bæði mjög íslenskt en um leið á heimsmælikvarða. Þessi blanda er nákvæmlega það sem ferðamenn eru að leita að og hún gefur samstarfsaðilum okkar frábæran vettvang til að kynna vörumerki sín.“






